Skoðun

Hvað kenndi Covid okkur?

Gunnar Hnefill Örlygsson skrifar

Aftur í öldum fyrir nútíma samskipti, tók langan tíma að koma boðum milli landshorna. Þá voru skeyti, bréf og boð borin áfram af embættismönnum sem kallaðir voru landspóstar. Samkvæmt tilskipun frá árinu 1776 skyldu þeir fara þrjár leiðir um landið þrisvar á ári. Eðlilega í ljósi samskipta, sem voru jafn stopul og þá, byggist landstjórn og stjórnsýsla að mestu leyti upp á einum stað, Reykjavík.

En í tímans rás hefur margt tekið breytingum, samgöngur hafa eflst og batnað, tækni hefur fleygt svo fram, að formæður okkar og -feður hefðu varla getað gert sér í hugarlund hvað framtíðin bæri í skauti sér. Eitt hefur þó staðist tímans tönn og það er sú staðreynd að stofnanir og ríkisfyrirtæki hafa að mestu byggst upp á einum stað á þessu víðferma og fagra landi okkar.

Í mars á síðasta ári var veröld okkar umturnað af völdum þess vágest sem Covid veiran er. Við brugðumst við og með samstöðu, breyttum okkar venjum til að vernda samfélag okkar og samborgara.

Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Viðbrögð okkar við þessum breyttu aðstæðum voru meðal annars, að færa fjölda starfa út úr skrifstofubyggingum í borginni og í heimahús. Við getum því spurt okkur; Hvað kenndi Covid okkur? Jú, að fjölda starfa má sinna annar staðar en í skrifstofubyggingum staðsettum í Reykjavík.

Ég vil líta svo á að hér sé sóknarfæri fyrir landsbyggðina. Í mínu kjördæmi, Norðausturkjördæmi, sem nær frá Siglufirði til Djúpavogs, eru 3 megin svæði, Eyjafjörður, Þingeyjarsýslur og Austurland. Öll þessi svæði eru vel í stakk búin til þess að taka við fleiri störfum og stofnunum.

Það mun styrkja hinar dreifðari byggðir, auk þess að færa ungu fólki af landsbyggðinni, sem haldið hefur til framhaldsnáms, tækifæri til aukins frelsis við val á búsetu og aukin kost á að snúa aftur heim. Samhliða því mun með þessu nást veruleg hagræðing varðandi húsnæðiskostnað, því fasteigna- og leiguverð á landsbyggðinni er til muna lægra en í höfuðborginni.

Temjum okkur tækifærin, sem framfarir og tæknin býður. Horfum björtum augum til framtíðar og þeirra möguleika sem þar eru.

Höfundur er frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. laugardaginn þann 29. maí 2021.




Skoðun

Skoðun

Hin­segin réttindi til fram­tíðar

Bjarndís Helga Tómasdóttir,Kristmundur Pétursson,Vera Illugadóttir,Jóhannes Þór Skúlason,Hannes Sasi Pálsson,Hrönn Svansdóttir,Sveinn Kjartansson skrifar

Sjá meira


×