Rafíþróttir

Leikmannaspá Ljósleiðaradeildarinnar: Svipaður hópur skilar svipaðri niðurstöðu

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
SAGA hafnar í fimmta sæti Ljósleiðaradeildarinnar ef spá leikmanna gegnur eftir.
SAGA hafnar í fimmta sæti Ljósleiðaradeildarinnar ef spá leikmanna gegnur eftir.

Leikmenn Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO spá SAGA fimmta sæti deildarinnar á komadi tímabili.

Ljósleiðaradeildin í CS:GO hefst með pompi og prakt næstkomandi þriðjudag og af því tilefni mun Vísir birta spá sem leikmenn deildarinnar settu saman fyrir tímabilið sem framundar er.

SAGA er spáð fimmta sæti deildarinnar, en liðið hafnaði í því sjötta á seinasta tímabili og færir sig því upp um eitt sæti á milli ára. Þó hefur liðum í deildinni fjölgað á milli ára og því mætti segja að fimmta sæti af tíu sé mun betri árangur en sjötta sæti af átta.

SAGA mætir til leiks með nánast sama leikmannahóp og lauk tímabilinu í fyrra. Liðið ætlar því að treysta því að þessi sami kjarni af leikmönnum muni koma þeim lengra en áður, en ljóst er að ærið verkefni er framundan.

Lið SAGA skipa þeir ADHD (Kristófer Daði Kristjánsson), DOM (Daníel Örn Melstað) xZeRq (Alistair Kristinn Rendall), skooN (Hreinn Óttar Guðlaugsson), WZRD (Enok Birgisson) og joejoekj$ (Jóhann Ólafur Sveinbjargarson).

Fyrsti leikur SAGA er gegn nýliðum Ten5ion miðvikudaginn 14. september klukkan 19:30. Ten5ion er spáð sjötta sæti deildarinnar og því er ljóst að framundan er hörkuviðureign straxí fyrstu umferð.

Ljósleiðaradeildin hefst næstkomandi þriðjudag, 13. september, en útsending hefst klukkan 19:15 og verða tveir leikir spilarðir, kl 19:30 og 20:30. Á fimmtudögum verða svo þrír leikir spilaðir til að loka umferðinni og hefst útsending þá líka kl 19:15, en leiktímar eru 19:30, 20:30 og 21:30. Beinar útsendingar alltaf á Stöð 2 eSport og Twitch-rás RÍSÍ.


Tengdar fréttir






×