Rafíþróttir

Skáningu í neðri deildi Ljósleiðaradeildarinnar lýkur á morgun

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Ljósleiðaradeildin

Sjöunda tímabil Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO hófst fyrir viku síðan, en enn geta lið skráð sig í neðri deildir hennar

Skráning er opin í neðri deildir Ljósleiðaradeildarinnar þar sem liðum gefst tækifæri til að sanna sig gegn öðrum liðum landsins. Liðin hafa fram á miðnætti á morgun, miðvikudag, til að skrá sig.

Eins og kom fram hér á Vísi fyrr í mánuðinum þá munu þau lið sem kepptu á síðasta tímabili deildarinnar halda sæti sínu aðeins ef þau skrá sig og greiða þátttökugjaldið fyrir miðnætti 21. september, en hægt er að skrá lið með því að smella hér.

Skráning í neðri deildir Ljósleiðaradeildarinnar stendur yfir fram á miðnætti þann 21. september næstkomandi, en allar upplýsingar um mótin má finna á heimasíðu Rafíþróttasamtaka Íslands.






×