Rafíþróttir

Tilþrifin: TH0R nær ás fyrir Dusty á fyrsta Ofurlaugardegi tímabilsins

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
TH0R á Elko tilþrif gærdagsins.
TH0R á Elko tilþrif gærdagsins.

Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það TH0R í liði Dusty sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.

Dusty og LAVA mættust í spennandi leik sem fram fór á kortinu Inferno á fyrsta Ofurlaugardegi tímabilsins. Þegar staðan var 5-3, Dusty í vil, tók TH0R sig til og tók út alla meðlimi LAVA þegar þeir nálguðust hann einn af öðrum í kringum sprengjusvæði A.

Þrátt fyrir þessi mögnuðu tilþrif TH0R máttu ríkjandi meistarar Dusty þola sitt fyrsta tap á tímabilinu því það voru að lokum liðsmenn LAVA sem höfðu betur, 16-12.

Þrátt fyrir tapið trónir Dusty enn á toppi Ljósleiðaradeildarinnar með tíu stig eftir sex umferðir, líkt og Þór sem vann sigur gegn Ármanni í gær. LAVA situr hins vegar í 3.-4. sæti deildarinnar með átta stig líkt og NÚ.

Klippa: Elko tilþrifin: TH0R nær ás fyrir Dusty á fyrsta Ofurlaugardegi tímabilsins





×