Rafíþróttir

Tilþrifin: RavlE fer illa með liðsmenn Viðstöðu

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
RavlE á heiðurinn af Elko tilþrifum gærkvöldsins.
RavlE á heiðurinn af Elko tilþrifum gærkvöldsins.

Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það RavlE í liði NÚ sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.

NÚ og Viðstöðu áttust við í fyrri viðureign gærkvöldsins þegar áttunda umferð Ljósleiðaradeildarinnar hófst. Liðin mættust á kortinu Mirage og voru það að lokum liðsmenn NÚ sem höfðu betur og lyftu sér þar með í það minnsta tímabundið á topp deildarinnar.

Þegar staðan var 11-4, NÚ í vil, var RavlE einn á móti þrem liðsmönnum Viðstöðu. Ekki nóg með það heldur var hann aðeins vopnaður skammbyssu og því var ólíklegt að hann myndi hafa betur í þessum aðstæðum.

RavlE lét það þó ekki stoppa sig og tók út bæði xeny og blazter áður en hann kom sprengjunni fyrir á sprengjusæði A. Hann var svo ekkert að bíða eftir því að sprengjan myndi klára lotuna heldur tók hann einnig út Tony til að tryggja sigurinn í lotunni og breyta stöðunni þannig í 12-4.

Klippa: Elko tilþrifin: RavlE fer illa með liðsmenn Viðstöðu





×