Skoðun

Elskum öll!

Margrét Tryggvadóttir skrifar

Heimurinn sem við búum í er dásamlegur á svo margan hátt. En hann getur líka verið flókinn og erfiður, þrátt fyrir alla þá tækni og þægindi sem við njótum í daglegu lífi. Við vitum að tækni getur auðveldað líf fólks og fyrirtækja og skapað aukin verðmæti. En við þurfum að kunna að umgangast tæknina og passa að hún stjórni okkur ekki, ýti ekki undir fordóma eða hafi slæm áhrif á líðan okkar.

Við hjá Nova litum inn á við og spurðum okkur hvað við gætum gert til þess að leggja okkar af mörkum í þessum málum. Nova hefur þannig markað sér stefnu til þess að vekja athygli á mikilvægi þess að hlúa að geðheilsunni og sýna hvort öðru virðingu. Það höfum við gert á ýmsan hátt. Við höfum beðið fólk um að leggja frá sér símana, við höfum talað um líkamsvirðingu og í nýrri herferð bendum við á að við erum öll eins í grunninn. Alveg sama hvernig við erum sköpuð.

Oft þörf en nú nauðsyn

En af hverju erum við að benda á að við séum öll eins og við eigum að elska öll? Pólarísering í þjóðfélaginu hefur ekki verið meiri í langan tíma. Kynþáttahatur og fordómar eru vaxandi vandamál og misskipting í heiminum virðist vera að aukast. Aðeins 34 þjóðir heimila til dæmis hjónabönd einstaklinga af sama kyni. Hér á Íslandi sjáum við aukna hatursorðræðu í garð hinsegin fólks. Á síðasta ári var krotað yfir regnbogalistaverk við Grafarvogskirkju og regnbogafánar við stöð Orkunnar í Suðurfelli voru skornir niður. 15% nemenda í 6. til 10. bekk í grunnskóla segjast hafa orðið fyrir einelti á síðasta ári sem er 5% aukning á síðustu sjö árum samhliða aukinni notkun á miðlum eins og Instagram og Tiktok. Ef það hefur einhvern tímann verið þörf á að benda á að við erum öll eins og að við þurfum að elska öll þá er það núna.

Tillitsleysi gagnvart öðrum getur þróast í fordóma. Með því að leggja okkur fram um að skilja og hvetja aðra í kringum okkur og með því að tileinka okkur að hugsa jákvætt um lífið og tilveruna og hlúa markvisst að því sem styrkir geðheilsu verður lífið einfaldlega auðveldara og skemmtilegra. Þess vegna segjum við hjá Nova – sýnum tillitssemi og elskum öll!

Höfundur er skemmtana- og forstjóri Nova.




Skoðun

Skoðun

Hin­segin réttindi til fram­tíðar

Bjarndís Helga Tómasdóttir,Kristmundur Pétursson,Vera Illugadóttir,Jóhannes Þór Skúlason,Hannes Sasi Pálsson,Hrönn Svansdóttir,Sveinn Kjartansson skrifar

Sjá meira


×