Rafíþróttir

Du­sty með frá­bæra endur­komu í úr­slita­leiknum

Snorri Már Vagnsson skrifar
NOCCO Dusty sigruðu íslensku forkeppnina fyrir BLAST-mótið.
NOCCO Dusty sigruðu íslensku forkeppnina fyrir BLAST-mótið. Rafíþróttasamband Íslands

Úrslitakvöld forkeppni BLAST-mótsins fór fram í dag. Í undanúrslitum spiluðu NOCCO Dusty gegn Þór og Saga lék gegn Young Prodigies.

Þórsarar héldu vel í við Dusty-menn í viðureign liðanna tveggja en Þór fundu þó ekki sigur í neinum leik. Og Dusty sigruðu 2-0. Leikirnir fóru 13-11 og 13-7.

Young Prodigies sigruðu fyrsta leikinn gegn Sögu en Saga svöruðu fljótt fyrir sig og sigruðu leik 2. Báðir voru sigrarnir með þó nokkrum yfirburðum en í síðasta leiknum var jafnara í spilum. Á endanum stóðu Saga-menn með sigurinn eftir spennandi leik sem endaði 13-11.

Saga og Dusty mættust því í úrslitum og tóku Saga fyrsta leikinn 13-11. Dusty fundu þó takt sinn á ný og sigruðu hina tvo leikina, og var sstaðan 13-9 og 13-7 í þeim.

Dusty sigra því íslensku forkeppni BLAST-mótsins og fá því miða í undankeppnina fyrir BLAST-mótið.






×