Rafíþróttir

Þórsarar á toppinn eftir sigur á Eyja­mönnum

Snorri Már Vagnsson skrifar
games_LD (1).psd(3)

Þór mættu ÍBV á Overpass í Ljósleiðaradeildinni í Counter-Strike í kvöld.

Þór hófu leika betur en þeir sigruðu fyrsti fjórar lotur leiksins áður en Eyjamenn sigruðu sína fyrstu lotu. ÍBV náðu að sigra næstu þrjár lotur og jöfnuðu leikinn í 4-4 eftir góða framistöðu. Þór fundu taktinn aftur og sigruðu lotu að nýju, 4-5.

Þórsarar sigruðu tvær lotur til viðbótar áður en ÍBV náðu að sigra síðustu lotu fyrri hálfleiks. Þórsarar höfðu því naumt forskot á Eyjamenn þegar hálfleik bar að garði.

Staðan í hálfleik: ÍBV 5-7 Þór

Þórsarar sigruðu skammbyssulotu seinni hálfleiks en ÍBV virtust ætla taka aðra lotu hálfleiksins. Þórsarar höfðu þó önnur plön og sneru lotunni í höndum ÍBV og fundu sigur að nýju, staðan þá 5-9.

Eftir lofsverða framistöðu í fyrri hálfleik virtist kraftur Eyjamanna hafa dvínað þó nokkuð er þeir komu sér fyrir í vörn og sigrarnir reyndust allir rata til Þórsara í seinni hálfleiknum. Höfðu þeir rauðu því þægilegan sigur úr krafsinu.

Lokatölur: ÍBV 5-13 Þór

Þórsarar koma sér á topp Ljósleiðaradeildarinnar í bili, en NOCCO Dusty geta jafnað þá að nýju, sigri þeir Ármann seinna í kvöld. Áfram eru ÍBV í níunda sæti deildarinnar með 4 stig.






×