Fótbolti

Á­kall á for­síðu stórblaðsins: Bjargið leik­manninum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kylian Mbappe svekkir sig eftir að hafa klúðrað víti á móti Liverpool í Meistaradeildinni.
Kylian Mbappe svekkir sig eftir að hafa klúðrað víti á móti Liverpool í Meistaradeildinni. Getty/Robbie Jay Barratt

Franska stórblaðið L'Équipe hefur miklar áhyggjur af besta fótboltamanni Frakka, það er manninum sem átti að vera einn sá besti í heimi en hefur hvorki verið fugl né fiskur á síðustu vikum.

Hér er auðvitað verið að tala um framherjann Kylian Mbappé. Draumafélagsskiptin til Real Madrid hafa verið miklu nær martröð til þessa á tímabilinu.

Leikurinn á móti Liverpool í Meistaradeildinni var ákveðinn lágpunktur fyrir leikmanninn en honum var haldið í skefjum í leiknum á Anfield á miðvikudagskvöldið. Mbappé klúðraði síðan vítaspyrnu þegar hann gat jafnað metin og komið sínu liði inn í leikinn.

Myndin af Mbappé á haus fór út um allt enda frekar táknræn fyrir frammistöðu hans í leiknum. Auk þessa er stórstjörnulið Real Madrid aðeins í 24. sæti í Meistaradeildinni og þarf því nauðsynlega á miklu meira að halda frá Mbappé.

Eitt eru vandræði Mbappé með Real Madrid liðinu en annað er það að hann hefur ekki verið með franska landsliðinu í síðustu verkefnum. Orðrómur var um að hann vildi ekki spila lengur fyrir landsliðsþjálfarann Didier Deschamps sem neitaði því sjálfur. Staðreyndin er þó sú að hann valdi ekki Mbappé í landsliðshópinn.

Þjálfari hans hjá Real Madrid, Carlo Ancelotti, talar aftur á móti um það að leikmanninn skorti sjálfstraust. Hann hefur nánast eingöngu skorað mörkin sín úr vítum og nú er hann farinn að klúðra þeim leik. Útlitið er ekki bjart.

L'Équipe sendir því frá sér ákall á forsíðu sinni í dag og kallar eftir því að þjálfarar Mbappé hjá bæði Real og franska landsliðinu sem og forseti Real Madrid bjargi hreinlega leikmanninum.

Forsíðumyndin er af Mbappé með fyrrnefnda menn að baki sér. Fyrirsögnin er síðan: „Il faut sauver le joueur Mbappé“ eða „Við verðum að bjarga Mbappé“ á íslensku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×