„Þær eru bara hetjur“ Valur Páll Eiríksson skrifar 29. nóvember 2024 15:28 Helga Ingvadóttir, móðir landsliðsfyrirliðans Sunnu Jónsdóttur, ásamt syni Sunnu sem er klár í slaginn. Vísir/VPE Helga Ingvadóttir, móðir landsliðsfyrirliðans Sunnu Jónsdóttur, er mætt á þriðja stórmótið og fyrsta Evrópumótið síðan 2010. Hún verður á meðal um rúmlega hundrað Íslendinga sem verða í stúkunni þegar Ísland mætir Hollandi klukkan 17:00 í Innsbruck.
Valur Páll Eiríksson skrifar frá Innsbruck Þónokkrir Íslendingar voru komnir saman á Hilton-hótelinu sem er á móti keppnishöllinni hér í bæ þegar fréttamann bar að garði um tveimur og hálfum klukkutíma fyrir leik. Fleiri eru á leiðinni en fjölmörg þeirra sem mæta á leik dagsins lentu í Munchen í hádeginu og eru nýmætt til Innsbruck. Íslenskir stuðningsmenn í Innsbruck.Vísir/VPE Á meðal gesta á hótelbarnum var Helga Ingvadóttir, móðir Sunnu Jónsdóttur. „Þetta er stórkostlegt. Bara ofboðslega gaman. Maður er stoltur fyrir hönd stelpnanna og okkar allra,“ segir Helga í samtali við fréttamann. Hún mætti á HM í Noregi í fyrra en er nú mætt á fyrsta Evrópumótið í 14 ár. Hún var líka á staðnum þegar Sunna fór, þá 21 árs, á fyrsta stórmótið sem Ísland tók þátt í. „Það var æðislegt líka en örugglega er þetta orðið stærra og meira núna,“ segir Helga sem segir stelpuna aðeins hafa breyst síðan. „Hún hefur þroskast heilmikið og er í öðru hlutverki núna.“ Vísir/VPE „Frá því hún var níu ára ætlaði hún sér bara að vera handboltakona. Það hefur gengið svona líka glimrandi vel. Það er æðislegt að hún hafi getað verið í þessu áhugamáli sínu svona lengi,“ segir Helga. Varðandi mótið fram undan kveðst Helga stolt af liðinu að hafa tryggt sér sæti á mótinu. Leikirnir þrír verði þó strembnir. „Þetta er ofsalega sterkur riðill en öll reynsla sem fæst er góð. Þær eru bara hetjur að vera komnar inn á mótið. En auðvitað eru þetta risa þjóðir sem þær eru að keppa við.“ Ísland og Holland mætast klukkan 17:00. Leiknum verður lýst beint á Vísi.
Landslið kvenna í handbolta EM kvenna í handbolta 2024 Tengdar fréttir „Maður finnur aðeins fyrir fiðrildunum“ Landsliðsþjálfarinn Arnar Pétursson býst við hörkuleik við Hollendinga sem íslenska kvennalandsliðið mætir í fyrsta leik á EM í Innsbruck í dag. Biðin hefur verið löng eftir því að hefja leik á mótinu og spennan mikil. 29. nóvember 2024 12:32 Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Íslenska kvennalandsliðið í handbolta hefur leik á fyrsta Evrópumóti liðsins síðan 2012 þegar það mætir sterku hollensku liði klukkan 17:00 í Ólympíuhöllinni í Innsbruck í dag. Komið er að fyrsta prófinu eftir mikla lærdómstörn. 29. nóvember 2024 10:02 „Stolt af sjálfri mér“ Steinunn Björnsdóttir þreytir frumraun sína á stórmóti er Ísland mætir Hollandi á EM í handbolta í Innsbruck seinni partinn í dag. Rúmt ár er frá því að hún eignaðist sitt annað barn og var hreint ekki fyrirséð að þetta yrði raunin. 29. nóvember 2024 08:01 „Þetta er mjög ljúft“ Berglind Þorsteinsdóttir nýtur þess vel að vera mætt með íslenska kvennalandsliðinu á stórmót í annað sinn. Undirbúningur liðsins hefur gengið vel fyrir stóra prófraun gegn Hollandi á morgun. 28. nóvember 2024 23:17 Mest lesið Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM Handbolti Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Fótbolti Kærður fyrir ofbeldi gegn syni sínum Sport Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Fótbolti Jenas missir annað starf Fótbolti Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Fótbolti Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Fótbolti Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Enski boltinn Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM Handbolti Í beinni: Holland - Ísland | Fyrsti leikur stelpnanna á EM Handbolti Fleiri fréttir Í beinni: Holland - Ísland | Fyrsti leikur stelpnanna á EM „Þær eru bara hetjur“ „Maður finnur aðeins fyrir fiðrildunum“ Monsi með eitt besta mark vikunnar í Evrópudeildinni Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM „Stolt af sjálfri mér“ Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM „Þetta er mjög ljúft“ Orri og félagar óstöðvandi á heimavelli Hófu titilvörnina með öruggum sigri Baldur og Hrannar með samtals 25 mörk í sigri ÍR Fimmta tap Gróttu í röð Sjö íslensk mörk í sjötta sigri Veszprém í röð Heimaliðin byrja vel á EM Ekki eins „starstruck“ og í fyrra Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys Þórir ekki sáttur við nýtt hlutverk Noru Mørk Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“ Haukar á 30 tíma ferðalagi: „Verð sennilega bara í hjólastól“ Íslendingarnir allt í öllu í Meistaradeildinni Skrýtið en venst Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri ÍBV (eða Haukar) í erfiðan slag í bikarnum „Önnur eins vitleysa hefur komið frá þessu félagi“ Haukar dæmdir úr bikarnum og ÍBV fer áfram Uppgjörið: FH - Fenix Toulouse 25-29 | Tap í síðasta Evrópuleik FH-inga Porto lagði Val í Portúgal Haukar með mikilvægan sigur í Mosfellsbæ Ótrúlegur Óðinn í stórsigri Kadetten sem skipti þó engu Sjá meira
„Maður finnur aðeins fyrir fiðrildunum“ Landsliðsþjálfarinn Arnar Pétursson býst við hörkuleik við Hollendinga sem íslenska kvennalandsliðið mætir í fyrsta leik á EM í Innsbruck í dag. Biðin hefur verið löng eftir því að hefja leik á mótinu og spennan mikil. 29. nóvember 2024 12:32
Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Íslenska kvennalandsliðið í handbolta hefur leik á fyrsta Evrópumóti liðsins síðan 2012 þegar það mætir sterku hollensku liði klukkan 17:00 í Ólympíuhöllinni í Innsbruck í dag. Komið er að fyrsta prófinu eftir mikla lærdómstörn. 29. nóvember 2024 10:02
„Stolt af sjálfri mér“ Steinunn Björnsdóttir þreytir frumraun sína á stórmóti er Ísland mætir Hollandi á EM í handbolta í Innsbruck seinni partinn í dag. Rúmt ár er frá því að hún eignaðist sitt annað barn og var hreint ekki fyrirséð að þetta yrði raunin. 29. nóvember 2024 08:01
„Þetta er mjög ljúft“ Berglind Þorsteinsdóttir nýtur þess vel að vera mætt með íslenska kvennalandsliðinu á stórmót í annað sinn. Undirbúningur liðsins hefur gengið vel fyrir stóra prófraun gegn Hollandi á morgun. 28. nóvember 2024 23:17