Lífið

Auðir og ó­gildir með kosningakaffi

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Snæbjörn Brynjarsson var einu sinni varaþingmaður Pírata en sagði af sér árið 2019 eftir að hafa lent í orðaskaki við Ernu Ýr Öldudóttur á Kaffibarnum. Nú er hann óháður og skilar jafnvel auðu eða ógildu.
Snæbjörn Brynjarsson var einu sinni varaþingmaður Pírata en sagði af sér árið 2019 eftir að hafa lent í orðaskaki við Ernu Ýr Öldudóttur á Kaffibarnum. Nú er hann óháður og skilar jafnvel auðu eða ógildu.

Kosningakaffi fyrir auða og ógilda verður haldið í Tjarnarbíó á morgun frá fjögur til sex. Boðið verður upp á vöfflur og barmmerki eins og um alvöru stjórnmálahreyfingu sé að ræða.

Snæbjörn Brynjarsson, leikhússtjóri Tjarnarbíós, kveðst hafa orðið „afar ergilegur“ þegar hann frétti að það yrðu kosningar á afmælisdaginn hans. 

„Ekki nóg með að þessir stjórnmálaflokkar geti ekki unnið saman og þurfi að halda kosningar í skítaveðri um miðjan vetur, þeir þurfa að gera það einmitt þegar ég á stórafmæli á laugardegi,“ segir hann.

Hann ákvað því að hætta við að leigja stóran veislusal og í staðinn bjóða allri þjóðinni upp á vöfflur í nafni þeirra sem skila auðum eða ógildum kjörseðlun.

„Allir eru velkomnir, sér í lagi þeir sem ekki vita hvað þeir eiga að kjósa eða halda jafnvel að þeir hafi óvart klúðrað atkvæðagreiðslunni einhvern veginn,“ segir hann.

Þess ber að geta að Snæbjörn var eitt sinn varaþingmaður Pírata en sagði af sér eftir að hafa lent í orðaskaki við Ernu Ýr Öldudóttur, þáverandi blaðamann og fyrrverandi formann framkvæmdaráðs Pírata, á Kaffibarnum.

Ekki hvatning um að kjósa ekki

Snæbjörn segir hugmyndina með vöfflukaffinu ekki vera að hvetja fólk til að kjósa ekki.

„Mér fannst bara sanngjarnt að allir fengju sitt kosningakaffi. Líka þeir sem ekki geta hugsað sér að kjósa flokk eða kunna ekki með atkvæði að fara. Þessi hópur stækkar í hverjum kosningum og það er lítið sem ekkert hlustað á okkur,“ segir hann.

Snæbjörn hefur auk þess ákveðið að taka að sér að vera talsmaður þessa hóps. Hann segir hópinn geta verið með hverjum sem er í stjórn og stjórnarandstöðu. Það eina sem hópurinn sé sammála um sé „að við værum til í að sjá færri þingmenn og færri ráðherra á næsta kjörtímabili.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.