Veður

Köld norðan­átt og víða él

Atli Ísleifsson skrifar
Það bætir í heldur í vind og ofankomu í kvöld.
Það bætir í heldur í vind og ofankomu í kvöld. Vísir/Vilhelm

Lægðin sem olli leiðindaveðrinu austast á landinu í gær þokast nú til norðurs og grynnist smám saman. Hún beinir til okkar fremur kaldri norðan- og norðvestanátt, fimm til fimmtán metrum á sekúndu í dag og víða él, en yfirleitt þurrt sunnan heiða.

Frá þessu segir í hugleiðingum veðurfræðings. Þar kemur fram að frost verði á bilinu tvö til átta stig.

„Í kvöld bætir heldur í vind og ofankomu, en á morgun gengur hæðarhryggur austur yfir landið og það lægir og léttir til víðast hvar. Á Suðaustur- og Austurlandi má þó búast við allhvassri eða hvassri norðvestanátt fram eftir degi. Herðir á frosti. Annað kvöld sækir hlýtt loft að úr vestri og það fer að blása vestantil á landinu.

Á sunnudag er svo útlit fyrir vaxandi sunnanátt, vætusamt sunnan- og vestanlands þegar líður á daginn og ört hlýnandi veður.

Nýjustu spár gera ráð fyrir að síðdegis og um kvöldið verði afar hvasst á norðvestanverðu landinu og Mið-Norðurlandi og er fólk hvatt til að fylgjast með veðurspám og viðvörunum,“ segir á vef hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag: Norðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og víða þurrt og bjart, en dálítil él norðanlands fram eftir morgni. Norðvestan 13-20 á Suðaustur- og Austurlandi, en lægir þar síðdegis. Frost 3 til 13 stig, kaldast inn til landsins. Vaxandi sunnanátt vestantil um kvöldið og dregur úr frosti.

Á sunnudag: Vaxandi sunnanátt og dálítil væta, 15-25 m/s síðdegis og rigning eða súld, hvassast um landið norðvestanvert. Lengst af þurrt á Norður- og Austurlandi. Hlýnar í veðri, hiti 5 til 13 stig um kvöldið.

Á mánudag: Minnkandi suðvestanátt og rigning, 8-15 síðdegis og dálitlar skúrir eða slydduél. Úrkomulítið norðaustantil. Kólnar smám saman.

Á þriðjudag: Vestlæg eða breytileg átt og bjart með köflum. Hiti kringum frostmark. Slydda eða rigning við suðurströndina um kvöldið.

Á miðvikudag og fimmtudag: Sunnan- og suðaustanátt og rigning með köflum, en úrkomulítið á Norðurlandi. Hlýnar í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×