Veður

Út­lit fyrir all­hvassan vind með rigningu

Atli Ísleifsson skrifar
Spáð er hlýnandi veðri og má reikna með hámarkshita á landinu kringum tíu stigin.
Spáð er hlýnandi veðri og má reikna með hámarkshita á landinu kringum tíu stigin. Vísir/Vilhelm

Víðáttumikil lægð er nú suðvestur í hafi sem nálgast landið og mun stjórna veðrinu næstu daga.

Á vef Veðurstofunnar segir að útlit sé fyrir suðaustan tíu til átján metrum á sekúndu með rigningu, einkum sunnan- og vestanlands. Spáð er hlýnandi veðri og má reikna með hámarkshita á landinu kringum tíu stigin.

„Á morgun gera spár ráð fyrir að miðja lægðarinnar verði við vesturströndina. Þá eru horfur á sunnan- og suðvestanátt með skúra eða slydduélja hryðjum og hitinn þokast niðurávið. Léttskýjað um landið norðaustanvert.

Síðan fer lægðin áfram til norðausturs og dregur þá yfir okkur norðanátt með frosti. Fyrst á Vestfjörðum annað kvöld og víða um land á föstudag. Með norðanáttinni fylgir ofankoma á norðanverðu landinu eins og svo oft áður,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Sunnan og suðvestan 8-15 m/s og skúrir eða él, en bjartviðri norðaustantil. Hiti 0 til 5 stig. Snýst í norðanátt með snjókomu á Vestfjörðum um kvöldið og kólnar.

Á föstudag: Norðvestan og norðan 10-18. Él norðanlands, en bjartviðri sunnantil. Lægir og léttir til vestanlands síðdegis og einnig á austanverðu landinu um kvöldið. Frost 1 til 8 stig.

Á laugardag: Sunnan 10-18 með slyddu og síðar rigningu, en úrkomulítið norðaustanlands. Hlýnar um tíma. Vestlægari og skúrir eða él um kvöldið, en þurrt á Austurlandi.

Á sunnudag: Vestlæg átt og él, en þurrt að mestu austanlands. Kólnandi veður.

Á mánudag og þriðjudag: Breytileg átt og él í flestum landshlutum. Frost 1 til 8 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×