Viðskipti innlent

Wok to Walk opnar á Smáratorgi

Atli Ísleifsson skrifar
Einar Örn Einarsson hefur áratuga reynslu af rekstri veitingastaða, en hann stofnaði Serrano árið 2002 og er framkvæmdastjóri Zócalo, sem rekur meðal annars veitingastaði í London, Stokkhólmi og Kaupmannahöfn.
Einar Örn Einarsson hefur áratuga reynslu af rekstri veitingastaða, en hann stofnaði Serrano árið 2002 og er framkvæmdastjóri Zócalo, sem rekur meðal annars veitingastaði í London, Stokkhólmi og Kaupmannahöfn.

Alþjóðlega veitingakeðjan Wok to Walk opnaði fyrsta veitingastað sinn á Íslandi á Smáratorgi í dag. Tveir staðir til viðbótar verða opnaðir innan tíðar.

Þetta kemur fram í tilkynningu þar sem segir að Wok to Walk reki yfir eitt hundrað veitingastaði í mörgum helstu stórborgum heims í átján löndum

Wok to Walk er í eigu japanska stórfyrirtækisins Toridoll en er rekið af Einari Erni Einarssyni hér á landi.

Haft er eftir Einari Erni að Wok to Walk sé líklega öflugasta keðjan í hópi Wok veitingastaða í heiminum og vinsælasti asíski götubiti Evrópu. Það sé því mjög spennandi að taka þátt í opnuninni hér heima, enda maturinn frábær og vörumerkið sterkt. „Gæði og úrval er lykilatriði hjá Wok to Walk og það tryggjum við,” segir Einar Örn.

Fyrsti Wok to Walk veitingastaðurinn á Íslandi er á Smáratorgi en reiknað er með að næsti staður opni að Reykjavíkurvegi 66 í Hafnarfirði og þriðji staðurinn í Borgartúni 29 í Reykjavík.

Einar segir að á staðnum verði boðið upp á Pad Thai, Yakisoba, Donburi og grænmetisrétti, svo eitthvað sé nefnt.

Einar Örn hefur áratuga reynslu af rekstri veitingastaða, en hann stofnaði Serrano árið 2002 og er framkvæmdastjóri Zócalo, sem rekur meðal annars veitingastaði í London, Stokkhólmi og Kaupmannahöfn.


Tengdar fréttir

Alþjóðlegur risi leysir Wok on af hólmi

Stærsta keðja svokallaðra „wok-veitingastaða“ í heiminum stefnir á opnun þriggja til fjögurra veitingastaða á höfuðborgarsvæðinu. Sú tegund veitingastaða er vel þekkt hér á landi undir merkjum keðjunnar Wok on.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×