Erlent

Uppreisnarleiðtogar funduðu í fyrsta sinn

Samúel Karl Ólason skrifar
Ahmed Al-Sharaa og Ahmed al-Awdah eru hér fyrir miðju.
Ahmed Al-Sharaa og Ahmed al-Awdah eru hér fyrir miðju.

Leiðtogar uppreisnarhópa frá norðanverðu Sýrlandi hittu í dag leiðtoga uppreisnarinnar í suðurhluta landsins í fyrsta sinn. Gífurlega mikilvægt er að tvinna þessar tvær fylkingar saman til að koma í veg fyrir áframhaldandi deilur og möguleg átök í Sýrlandi.

Ahmed Al-Sharaa, sem gengið hefur undir nafninu Abu Mohammed al-Jolani og leiðir öflugasta uppreisnarhópinn í Sýrlandi, sem ber nafnið HTS, fundaði meðal annars með Ahmed al-Awdah, sem er háttsettur leiðtogi uppreisnarhópa í suðurhluta landsins og öðrum leiðtogum úr þessum hópi.

Fundurinn fór fram í Damaskus, höfuðborg landsins, en leiðtogar HTS hafa tekið forystu þegar kemur að því að mynda nýja ríkisstjórn í Sýrlandi og hafa þeir heitið því að allir þjóðarhópar Sýrlands muni eiga rödd við stjórnarborðið.

Sjá einnig: Boða tíma „stöðugleika og friðar“

Það var skyndisókn HTS í norðurhluta landsins sem var upphafið að endanum á stjórnartíð Bashars al-Assad, fyrrverandi forseta Sýrlands. Uppreisnar- og vígamenn frá Idlib streymdu í lok nóvember í átt að Aleppo og tóku borgina á einungis nokkrum dögum. Þaðan settu þeir stefnuna á Hama og féll hún sömuleiðis tiltölulega fljótt.

Varnir stjórnarhers Assads féllu hratt saman og þegar HTS-liðar hófu umsátur um hina mikilvægu borg Homs, tóku aðrir uppreisnarhópar upp vopn víðsvegar um landið.

Uppreisnarmennirnir í suðurhluta landsins ráku stjórnarherinn hratt frá borginni Daraa, sem sögð er fæðingarstaður uppreisnarinnar 2011, og tóku einnig nærliggjandi sveitir. Það voru svo þeir hópar sem tóku Damaskus á meðan HTS sat enn um Homs.

Hin svokallaða uppreisn er mynduð úr aragrúa hópa og fylkinga sem myndaðir eru af vígamönnum, uppreisnarmönnum og málaliðum af fjölbreyttum þjóðarbrotum sem hafa mismunandi hagsmuni og áherslur.

Sjá einnig: Öng­þveiti við „slátur­hús“ Assads

Við það bætast svo Alavítar við strandlengju Sýrlands, sem er minnihlutahópur sem Assad-fjölskyldan tilheyrði, og sýrlenskir Kúrdar í austurhluta landsins. Frá því HTS hóf sókn sína gegn Assaf hafa aðrir uppreisnarmenn í norðurhluta landsins, sem njóta mikils stuðnings frá Tyrklandi, herjað á Kúrdana.

Uppreisnarleiðtogar hafa mikið verk fyrir höndum, eigi þeim að takast að halda Sýrlandi sameinuðu.

Uppreisnarmenn kveiktu í morgun í grafhýsi Hafez al-Assad, föður Bashars, í bænum Qardaha í morgun. Þar búa að mestu leyti Alavítar.


Tengdar fréttir

Draga tennurnar úr næstu ríkisstjórn Sýrlands

Ísraelar hafa á undanförnum dögum, eða frá því ríkisstjórn Bashar al-Assads féll, gert hundruð loftárása í Sýrlandi. Markmið þessara árása virðist vera að draga tennurnar úr næstu ríkisstjórn Sýrlands takist yfir höfuð að mynda hana.

Erlend ríki keppast við að tryggja hagsmuni sína í Sýrlandi

Atburðarásin í Sýrlandi hefur verið hröð eftir að uppreisnarmenn létu til skarar skríða gegn stjórn Bashar al-Assad á dögunum, sem nú er flúinn til Rússlands. Enn ríkir algjör óvissa um framhaldið en erlend ríki keppast að því að tryggja hagsmuni sína.

Hver er Assad? Læknaneminn sem varð að einræðisherra

Stjórn Bashar al-Assad í Sýrlandi var steypt af stóli í morgun af uppreisnarmönnum eftir borgarastríð sem hefur geisað þar í þrettán ár. Þar með lauk 24 ára valdatíð hans en jafnframt fimmtíu ára valdatíð Assad-fjölskyldunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×