Innlent

Síðast­liðin tvö ár verið „al­veg skelfi­leg“

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Líkt og sjá má er einkar stutt á milli fjölbýlishússins og vöruhússins.
Líkt og sjá má er einkar stutt á milli fjölbýlishússins og vöruhússins. Vísir/Bjarni

Íbúi fjölbýlishúss í Breiðholti er allt annað en ánægður með framkvæmdir sem staðið hafa yfir á næstu lóð í meira en ár. Þegar framkvæmdum lýkur mun standa eftir mörg þúsund fermetra vöruhús, steinsnar frá stofuglugganum.

Hagar munu leigja húsið undir starfsemi dótturfélaga sinna, Eldum rétt og Ferskra kjötvara. Íbúi í húsinu, sem sér fimm þúsund fermetra bygginguna út um stofugluggann, er allt annað en ánægður með framkvæmdir við smíði hússins.

„Þetta er búið að vera skelfilegt síðastliðin tvö ár. Ég þakka fyrir að hafa lifað þetta af. Ég hef þurft að vera mikið að heiman, farið í vinnu. Ég er á áttræðisaldri og stunda það að vera að heiman að vinna til þess að þurfa ekki að vera heima hjá mér,“ segir Guðrún Hrólfsdóttir, íbúi í húsinu sem stendur næst vöruhúsinu.

Mikill hávaði og fyrirferð fylgi framkvæmdum smíði hússins, en eins og sjá má í fréttinni hér að ofan stendur það afar nálægt blokkinni. Þegar framkvæmdum loks lýkur mun húsið sjálft byrgja sýn íbúa í húsinu verulega.

„Kvöldsólin var tekin af mér og birtan minnkar um að minnsta kosti helming. Ég er ekkert sátt við það.“

Guðrún á svölum íbúðar sinnar. Útsýnið þar er ekki mjög fjölbreytt. Þaðan sést aðallega ein hlið ógnarstórs vöruhússins.Vísir/Bjarni

„Ég hef verið að vinna að því síðustu vikur og mánuði að reyna að sætta mig við það. Það er ekkert annað að gera fyrir mig ef ég ætla að láta mér líða vel hérna,“ bætir Guðrún við.

Hún segir fleiri íbúa í hverfinu óánægða.

„Það erum ekki bara við sem snúum út að framkvæmdunum, heldur báðar blokkirnar hérna.“

Fyrir um einu og hálfu ári síðan var greint frá því að íbúar í hverfinu væru ósáttir við stærðarinnar grjóthaug á lóðinni við hlið hússins sem Guðrún býr í. Haugurinn er farinn, en vörhúsið risið í staðinn.

„Það var skárra að því leytinu til að hafa moldarhauginn að ég vissi hann færi einhvern tímann, en þetta fer ekki.“

Þetta eru kannski ekki góð skipti, eða hvað? 

„Ég er ekki alveg búin að gera það upp við mig, en allavega er þetta staðreynd.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×