Lífið

Vonast til að hitta átrúnaðargoðin einn daginn

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Hilmir, Viktor, Kristófer Karl og Jakob
Hilmir, Viktor, Kristófer Karl og Jakob Vísir/BJarni

Fjórir strákar sem mynda saman ábreiðuband eru stærstu aðdáendur strákabandsins IceGuys sem eru með tónleika í kvöld. 

Strákarnir Hilmir, Viktor Skúli, Kristófer Karl og Jakob mynda dyggustu stuðningssveit hljómsveitarinnar IceGuys. Þeir vonast til þess að fá að hitta meðlimi strákasveitarinnar einn daginn en einnig vonast þeir til þess að geta einhvern tímann haldið sína eigin tónleika líkt og fyrirmyndirnar.

Hver og einn hefur valið sér sinn uppáhalds meðlim í strákasveitinni víðfrægu og tekið upp hlutverk þeirra. 

Hinn þrettán ára Hilmir er Friðrik Dór, Viktor Skúli, fimmtán ára, er Herra Hnetusmjör, Kristófer Karl sem er einnig fimmtán ára er Jón Jónsson og hinn þrettán ára Jakob er enginn annar en Aron Can. Mikilvægt sé að skipta með sér hlutverkum í hljómsveitinni.

Drengirnir ásamt mæðrum sínum.vísir/bjarni

Jakob segir að IceGuys séu einfaldlega bestir og tekur fram að hann sé mjög spenntur fyrir því að mæta á tónleikanna hjá hljómsveitinni sem standa nú yfir um helgina.

Í raun er um hálfgert ábreiðuband að ræða enda verja þeir miklum tíma í að læra lögin og búa til atriði. Kristófer Karl segir að það sé ávallt skemmtilegt hjá þeim félögunum þegar þeir æfi sig saman sem sé oft og tíðum. 

Hægt er að sjá viðtalið við drengina og atriði frá þeim í spilaranum hér að neðan.

„Mikil gjöf til okkar drengja“

Thelma Þorbergsdóttir, móðir Kristófer Karls, segist vera mjög ánægð með IceGuys líkt og sonur sinn. Hún viðurkennir þó að hún væri til í ný lög frá hljómsveitinni enda séu þau fáu sem bandið hefur gefið út spiluð ótt og títt á heimilinu.

„Þeir eiga örugglega helminginn af spilununum á Spotify, svo að velgengnin er mögulega þeim að þakka,“ segir Thelma.

Fjóla Helgadóttir, móðir Jakobs, Thelma Þorbergsdóttir, móðir Kristófer Karls, og Sólný Pálsdóttir, móðir Hilmis.Vísir/Bjarni

Sólný Pálsdóttir, móðir Hilmis, tekur undir orð Thelmu en ítrekar að auki að IceGuys skipti miklu máli fyrir drengina.

„Við erum mjög ánægðar með hljómsveitina, því þeir strákarnir okkar hafa virkilega lært. Þeir læra þessa texta, þessir dansar. Þetta er bara mikil gjöf til okkar drengja.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.