Innlent

Hafa varla undan við að verka harð­fisk í Sand­gerði

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Halldór (t.v.) og Birgir Þór með Stafnes harðfisk, sem þeir hafa varla undan við að framleiða og pakka því vinsældir hans eru svo miklar.
Halldór (t.v.) og Birgir Þór með Stafnes harðfisk, sem þeir hafa varla undan við að framleiða og pakka því vinsældir hans eru svo miklar. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Vinir á besta aldri í Sandgerði, sem hafa meira og minna unnið við fiskvinnslu alla sína ævi rak í rogastans eftir að þeir byrjuðu að framleiða harðfisk hvað landsmenn eru sjúkir í harðfisk enda hafa félagarnir ekki undan við að framleiða fiskinn.

Hér erum við að tala um vinina og samstarfsfélagana Halldór Ármannsson og Birgir Þór Guðmundsson hjá fyrirtækinu B.Júl, sem er með flotta aðstöðu við Sjávargötu 1 í Sandgerði fyrir fiskvinnslu og harðfiskverkun. Harðfiskurinn heitir Stafnes harðfiskur og er smáýsa, sem veiðist af línubátum út af Sandgerði og Stafnesi.

„Hráefnið er lykilatriðið, að þú fáir gott hráefni og svo bara meðhöndlunin á fiskinum, að þú farir alltaf sama ferlið,“ segir Halldór Ármannsson, eigandi Stafnes harðfisks framleiðslunnar.

Halldóra segir að það sé ótrúlega mikil vinna í kringum harðfiskinn.

„Já, já, þetta er svona föndur eins og við segjum eða svona dund. Þú þarft svolítið að átta þig á hvað þú ert með í höndunum, þetta er lifandi hráefni og það er ekkert sama hvernig meðferðina er á þessu og hvernig er farið með það,“ segir Halldóra og bætir við.

„Þú færð ekkert hollari vöru en harðfisk, hérna erum við bara með fisk, þurrefnið sem verður eftir og pínulítið salt, sem fiskinum er dýft í og það er náttúrulega mjög náttúrulegt þannig lagað, þannig að það er ekkert aukaefni eða neitt, sem er í þessu að öðru leyti.”

Hér eru Halldór og Birgir Þór að valsa fiskinn.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Og harðfiskur með vel af smjöri, er það ekki það besta?

„Jú, jú, er það ekki Keto alveg út í eitt í dag, það er það besta, sem menn ættu að fá,” segir Halldóra.

Halldór segir það hafa komið sér skemmtilega á óvart þegar félagarnir byrjuðu á harðfiskverkuninni hvað landsmenn eru sjúkir í harðfisk enda seljist hann eins og heitar lummur þrátt fyrir að mörgum þyki fiskurinn dýr.

Harðfiskurinn er unnin úr smáýsu, sem veiðist út af Sandgerði og Stafnesi.Magnús Hlynur Hreiðarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×