Hætta á fleiri gossprungum í Grindavík Veðurstofan metur aukið kvikuflæði í kvikuganginum undir Grindavík. Fleiri gossprungur gætu opnast inni í bænum. Innlent 14. janúar 2024 13:05
Hraun runnið yfir Grindavíkurveg Hraunrennslið úr eldgosinu sem hófst í morgun hefur náð yfir Grindavíkurveg. Þetta sést á vefmyndavélum. Innlent 14. janúar 2024 12:49
„Þetta hraun mun því miður flæða hratt í átt að nyrstu byggð“ Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvár hjá Veðurstofu Íslands, segir aðeins fimmtíu til hundrað metra í nyrstu byggð í Grindavík frá sprungunni sem opnaðist innan varnargarða skömmu eftir klukkan 12. Innlent 14. janúar 2024 12:39
Unnið að varnargörðunum fáeinum metrum frá hrauninu Enn er vinna í gangi við varnargarðinn við Grindavíkurveg þrátt fyrir að hraunflæðið sé einungis örfáum metrum frá. Miðað við hraða hraunsins er ljóst að vinnuflokkurinn getur ekki unnið mikið lengur. Innlent 14. janúar 2024 12:38
Ný sprunga hefur opnast rétt norðan bæjarins Ný sprunga hefur opnast rétt norðan byggðar í Grindavík. Sprungan opnaðist um klukkan 12:10, norðan götunnar Efrahóps. Innlent 14. janúar 2024 12:14
Eiginkona eiganda Liverpool þurfti að flýja Bláa lónið Rýma þurfti Grindavík í nótt þegar ljóst var að eldgos væri að fara af stað. Eiginkona John W. Henry eiganda Liverpool var ein af þeim sem þurfti að yfirgefa Bláa lónið. Enski boltinn 14. janúar 2024 12:10
Flogið yfir gosstöðvarnar Ný myndskeið sem tekin eru með dróna sýna skýrt hversu nálægt Grindavíkurbæ gossprungan, sem opnaðist í morgun, er. Innlent 14. janúar 2024 11:56
Nýjar sprungur hafa opnast í Grindavík „Við sjáum í Grindavík að það eru nýjar sprungur búnar að opnast. Við erum með dróna yfir bænum og við erum að sjá nýjar sprungur. Við erum að sjá gufu sem þýðir að heita vatnið er farið í sundur á einhverjum stöðum. Það er eitt og annað sem á eftir að koma í ljós.“ Innlent 14. janúar 2024 11:47
„Þetta er bara alveg hrikaleg staða“ „Þetta er bara alveg hrikaleg staða. Mikið áfall,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra um yfirstandi eldgos sem hófst nálægt Grindavík í morgun. Hún segir hug sinn hjá íbúum Grindavíkur en biðlar til allra að halda ró sinni. Innlent 14. janúar 2024 11:31
Gosið sést víða að Eldgosið við Grindavík sést vel frá höfuðborgarsvæðinu og víðar. Innlent 14. janúar 2024 11:05
Grindvíkingar „eins og innflytjendur í eigin landi“ Hún Cortina frá Rúmeníu var komin upp að gosstöðvunum snemma í morgun þar sem hún á frí í vinnunni í dag. Hún segist finna til með Grindvíkingum sem innflytjenda og segir þá vera orðna eins konar innflytjenda í eigin landi. Innlent 14. janúar 2024 10:50
Hraunflæðið fjórðungur af því sem var síðast Prófessor í jarðeðlisfræði segir aðeins nokkrar klukkustundir í að hraun nái að renna til húsa innan Grindavíkurbæjar, ef hraunflæði helst óbreytt. Innlent 14. janúar 2024 10:44
Aukafréttatími í opinni dagskrá á Stöð 2 Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar efndi til aukafréttatíma klukkan tólf á hádegi vegna eldgossins norðan Grindavíkur. Innlent 14. janúar 2024 10:32
Skrítið að vakna við fréttir um að húsið sé að fara undir hraun Forstjóri líftæknifyrirtækisins ORF segir skrítið að hafa vaknað við þær fréttir í morgun að hraun rynni í átt að gróðurhúsi fyrirtækisins fyrir ofan Grindavík. Það komi honum þó ekki alveg á óvart, enda sitji húsið á sprungunni sem klýfur bæinn. Innlent 14. janúar 2024 10:29
„Vinsamlegast gefið okkur vinnufrið“ Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna, segir fjölda fólks hafa þyrpst að Reykjanesskaga til að berja eldgos sem hófst í morgun augum. Hann biður fólk um að vera heima og gefa viðbragðsaðilum vinnufrið til að bjarga því sem bjargað verður. Innlent 14. janúar 2024 10:28
Bein útsending: Eldgosið rætt á Sprengisandi Eldgosið sem hófst norðan Grindavíkur í morgun verður fyrirferðarmest í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni sem hófst klukkan 10 í morgun. Innlent 14. janúar 2024 10:19
„Þetta virðist ekki vera jafnmikill ofsi“ Hópstjóri náttúruvár hjá Veðurstofu Íslands segir yfirstandandi eldgos vera minna en það síðasta. Hluti hraunsins renni innan varnargarða við Grindavík en meirihluti þess renni í suðvestur, „réttu megin“ við garðana. Innlent 14. janúar 2024 10:17
Skiptinemar einir fyrstu við gosstöðvarnar Einir fyrstu til að koma og bera gosið augum voru tveir skiptinemar við háskólann. Þau Hanna Kling og Léon Mizera segjast hafa ætlað í dagsferð og voru á skrifstofu bílaleigu þegar þeim bárust fréttir að gos væri hafið. Þau hafi hlaupið út og séð himinbjarmann og ákveðið að breyta um áætlun. Innlent 14. janúar 2024 10:16
Tóku spennu af háspennustreng til að verja orkuverið Páll Erland, forstjóri HS Veitna, segir í samtali við Vísi að helsta áhyggjuefnið, hvað varðar orkumál, séu rafmagnsinnviðir við Grindavíkurveg og inni í Grindavíkurbæ. Innlent 14. janúar 2024 09:58
Bjarga verðmætum undan hraunflæðinu Menn eru að vinnu við að bjarga jarðýtum og fleiru, sem er alveg við hraunjaðarinn. Innlent 14. janúar 2024 09:53
Hefur ekki áhrif á starfsemi Keflavíkurflugvallar Eldgosið norðan Grindavíkur, sem hófst skömmu fyrir klukkan átta í morgun, hefur ekki haft áhrif á starfsemi Keflavíkurflugvallar eða áætlun innanlandsflugs. Innlent 14. janúar 2024 09:45
Myndir úr eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar Vísindamenn eru í eftirlitsflugi með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Myndir teknar úr þyrlunni benda til þess að gossprunga sé opin beggja megin varnargarðs norðan Grindavíkur. Innlent 14. janúar 2024 09:22
Sprunga opnast beggja vegna varnargarðanna Af fyrstu myndum úr eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar hefur sprunga opnast beggja vegna varnargarðanna sem byrjað vara að reisa norðan Grindavíkur. Innlent 14. janúar 2024 09:03
Hraunið hefur náð að varnargörðum Hraunið sem rennur úr gíg sunnan Hagafells hefur nú náð varnargörðum sem hafa verið í byggingu norðan Grindavíkur. Innlent 14. janúar 2024 08:53
Hraun rennur líklega í suður í átt að bænum Hraun úr eldgosinu, sem hófst laust fyrir klukkan 08, rennur að öllum líkum í suður í átt að Grindavíkurbæ. Það kom þó upp norðan varnargarða við bæinn. Innlent 14. janúar 2024 08:15
Eldgos er hafið Eldgos er hafið norðan við Grindavík. Fyrsta mat á staðsetningu er nálægt Sundhnúk klukkan 7:57 í morgun. Innlent 14. janúar 2024 08:00
Hætta aukist á öllum svæðum og uppfæra hættumatskort Veðurstofan hefur uppfært hættumatskort í ljósi túlkunar nýjustu gagna. Hætta hefur aukist á öllum svæðum. Innlent 14. janúar 2024 07:58
Ekkert annað að gera en að bíða og sjá „Það er ekki margt annað hægt að gera en að bíða og sjá hvernig málin þróast. Það er búið að rýma bæinn.“ Innlent 14. janúar 2024 07:51
„Það á enginn að þurfa að gista á bedda í nótt“ Tugir hafa komið í fjöldahjálparstöð Rauða krossins í Efstaleiti í morgun eftir að Grindavíkurbær var rýmdur á fimmta tímanum, að sögn Aðalheiðar Jónsdóttur teymisstjóra neyðarvarna hjá Rauða krossinum. Innlent 14. janúar 2024 07:14
Fluglitakóðinn appelsínugulur Fluglitakóðinn fyrir Reykjanes hefur verið hækkaður og en hann nú appelsínugulur. Innlent 14. janúar 2024 06:48