Fá að sækja dýrin sem verða eftir í skammdeginu Fulltrúar dýraverndarfélaga hafa gengið grænt ljós til að sækja þau dýr sem verða eftir í Grindavík í dag þegar fer að dimma. Þetta segir Anna Margrét Áslaugardóttir formaður Dýrfinnu í samtali við Vísi. Innlent 13. nóvember 2023 13:13
Nesvegur mikið skemmdur og ófær Nesvegur vestan Grindavíkur til móts við golfvöllinn er í sundur og er alveg ófær. Starfsmenn Vegagerðarinnar hafa verið að störfum á staðnum í dag. Innlent 13. nóvember 2023 13:06
Grindvíkingar búi sig undir gríðarlegt tjón „Ljóst er að gríðarlegt tjón er á bænum okkar og gott að fólk undirbúi sig undir það.“ Innlent 13. nóvember 2023 12:44
Fjárfestar loka framvirkum samningum með krónunni vegna ótta við eldgos Gengi krónunnar hefur fallið skarpt á síðustu dögum samhliða því að auknar líkur eru nú taldar á eldgosi á Reykjanesskaga sem gæti meðal annars raskað verulega starfsemi stórra ferðaþjónustufyrirtækja á svæðinu. Talsvert hefur verið um að fjárfestar séu að loka framvirkum stöðum sínum með krónunni í þessum mánuði sem hefur ýtt enn frekar undir gengislækkun krónunnar. Innherji 13. nóvember 2023 12:41
Svo til óbreytt ástand en minni líkur á gosi ef eitthvað er Litlar breytingar eru á stöðunni í Grindavík þó að verulega hafi dregið úr stærri skjálftum síðustu sólarhinga. Jarðeðlisfræðingur segir svipaðar líkur á gosi og áður. Innlent 13. nóvember 2023 12:23
Búa í hesthúsi meðan ósköpin ganga yfir Þau Rúrik Hreinsson og Paricia Hobi flúðu bæinn eins og aðrir Grindvíkingar og fundu athvarf í hesthúsi í Fjárborgum, rétt fyrir ofan borgina. Innlent 13. nóvember 2023 12:18
Virknin í og við Grindavík nánast óbreytt Mat Veðurstofunnar er að virknin í og við Grindavík sé nánast óbreytt frá því í gær. Skjálftavirknin er dreifð um suðurhluta kvikugangsins á milli Sundhnúks og Grindavíkur á um tveggja til fimm kílómetra dýpi. Innlent 13. nóvember 2023 11:49
Víðtæk lokun hindrar för um stóran hluta Reykjanesskaga Akstursbann það sem Almannavarnir tilkynntu um á föstudagskvöld á öllum leiðum til Grindavíkur er enn í gildi. Svo víðtæk er lokunin að hún bannar för ökutækja um stóran hluta Reykjanesskagans. Innlent 13. nóvember 2023 10:43
Of seint að breyta tryggingum Grindvíkinga Náttúruhamfaratrygging Íslands segir að þar sem búið sé að lýsa yfir neyðarástandi í Grindavík og rýma bæinn sé ljóst að ekki megi gera nýja vátryggingarsamninga eða breyta eldri samningum um eignir í bænum. Innlent 13. nóvember 2023 10:41
„Við bíðum og vonum að röðin komi að okkur“ Fjölmargir Grindvíkingar hafa ekki séð myndir af bænum sínum síðan allsherjarrýming var framkvæmd á föstudagskvöld. Íbúar í Grindavík óttast miklar skemmdir á húsum sínum. Íbúi í Grindavík vonast til að fá að sækja muni heim til sín. Innlent 13. nóvember 2023 10:37
Listinn yfir götur í Grindavík vegna verðmætabjörgunar Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að hleypa íbúum í Grindavík inn á skilgreind svæði í bænum í dag. Innlent 13. nóvember 2023 10:06
Skjálftarnir aftur á nokkurra kílómetra dýpi Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur, segir jarðskjálftana við Grindavík aftur komna á fjögurra til fimm kílómetra dýpi. Það geti falið í sér að kvikan muni ekki ná upp á yfirborðið að svo stöddu. Hann segir þó erfitt að spá um framhaldið. Innlent 13. nóvember 2023 09:52
Telja fasteignir og lausafé Vísis ehf. vel tryggt Staðan á Reykjanesskaga hefur ekki áhrif á starfsemi útgerðarinnar Vísis en fiskvinnsla í Grindavík hefur stöðvast. Stjórnendur vinna við að bregðast við aðstæðum og munu taka ákvarðanir í samræmi við þróun mála. Stjórnendur telja fasteignir og lausafé félagsins í Grindavík vera vel tryggt. Viðskipti innlent 13. nóvember 2023 09:51
Vaktin: „Hlýhugur þjóðarinnar til Grindvíkinga gríðarlega mikill“ Skjálftavirkni hefur haldið áfram á Reykjanesskaga í dag. Innlent 13. nóvember 2023 08:46
Landvernd styður Grindavík Landvernd, umhverfissamtök sendu í gær sveitarstjóra Grindavíkur eftirfarandi bréf, sem er opið bréf til Grindvíkinga og stjórnvalda. Í bréfinu lýsa samtökin fullum stuðningi við nauðsynlegar framkvæmdir sem tryggja innviði og samfélag á hamfarasvæðum og bjóða fram aðstoð við vinnu í samræmi við markmið Landverndar um að verja og endurreisa náttúru og umhverfi eins og best hæfir náttúrulegum aðstæðum og búsetu í landinu. Skoðun 13. nóvember 2023 07:00
Samantekt: Tíðindalítil nótt að baki en morgunfundir framundan „Biðstaða“ er orð dagsins hvað varðar jarðskjálfta og möguleg eldsumbrot við Grindavík. Skjálftavirknin er söm og hún hefur verið; sífelldir skjálftar en flestir undir 3,0 að stærð. Innlent 13. nóvember 2023 06:08
Óbreytt staða en von á nýjum gögnum í fyrramálið „Staðan er bara óbreytt,“ segir Elísabet Pálmadóttir, náttúruvársérfræðingur á vakt hjá Veðurstofu Íslands. Innlent 13. nóvember 2023 04:07
Stígur til hliðar sem formaður Landsbjargar Formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar hefur ákveðið að stíga tímabundið til hliðar sem formaður félagsins og úr stjórn þess. Innlent 12. nóvember 2023 23:56
Þakklátur og stoltur af samfélaginu Haldin var svokölluð samverustund fyrir Grindvíkinga og þau sem vildu sýna þeim samhug og styrk í Hallgrímskirkju í dag. Þar sagði Guðni Th. Jóhannesson, forseti, að hann væri þakklátur og stoltur fyrir að búa í samfélagi Íslendinga. Fannar Jónsson, bæjarstjóri Grindavíkur, sagði óvissuna erfiða Innlent 12. nóvember 2023 22:43
Þula, Yrja og Þengill bíði eftir að þeim sé hleypt út Fulltrúar dýraverndunarsamtaka biðu í allan dag við lokunarpóstinn á Suðurstrandarvegi eftir leyfi til að fara inn í Grindavík en fengu það ekki. Dýrfinna og Kattholt hafa kortlagt staðsetningu dýra í bænum, safnað búnaði og fengið lykla að húsum eigenda til að bjarga dýrunum. Innlent 12. nóvember 2023 22:02
Björguðu 66 dýrum úr Grindavík Sigrún Eggertsdóttir var meðal þeirra Grindvíkinga sem fengu að fara að sækja dýr sín í dag. Þökk sé tveimur Keflvíkingum sem buðu fram hjálp sína og hestakerrur gátu þau bjargað 66 dýrum úr Grindavík áður en ástandið versnaði. Innlent 12. nóvember 2023 21:21
„Maður er núna bara að vinna og halda haus og svo grátum við“ Konur sem sóttu nauðsynjar á heimili sín í Grindavík voru ánægðar með hvernig gekk þó tíminn hefði verið naumur. Þær sögðu Grindvíkinga í áfalli en fólk reyndi bara að halda haus. Þær eru hrærðar yfir samhug Íslendinga. Innlent 12. nóvember 2023 19:24
„Svartari sviðsmynd en ég hafði ímyndað mér“ Metra djúpur sigdalur hefur myndast í Grindavík og bendir það til þess að kvikugangurinn sem myndast hefur undir bænum sé kominn mjög nálægt yfirborðinu. Mögulega sé stutt í að kvikan nái til yfirborðsins og það innan bæjarmarka Grindavíkur. Innlent 12. nóvember 2023 19:11
„Tímabundin“ skattahækkun fylgir varnargarðafrumvarpi Stjórnarfrumvarp forsætisráðherra um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga gerir ráð fyrir að nýr skattur verði lagður á alla húseigendur í landinu. Skattinum, sem kallast forvarnagjald, er ætlað að skila nærri einum milljarði króna í tekjur á næsta ári og tekið fram að hann verði lagður á „tímabundið í þrjú ár“. Innlent 12. nóvember 2023 17:28
Óvissan um að missa Grindavík það langversta Íbúar Grindavíkur sem biðu þess að komast inn í bæinn sinn til þess að ná í nauðsynjar með viðbragðsaðilum í Þórkötlustaðahverfi voru eðli málsins samkvæmt misbrattir þegar fréttastofa tók þá tali nú síðdegis. Einn segist ekki halda að hann muni sjá húsið sitt aftur. Innlent 12. nóvember 2023 17:07
Samverustund fyrir Grindvíkinga Samverustund fer fram í Hallgrímskirkju í Reykjavík fyrir Grindvíkinga og þau sem vilja sýna þeim samhug og styrk. Samverustundin hefst klukkan 17:00 og er hægt að fylgjast með samverustundinni í beinu streymi. Innlent 12. nóvember 2023 16:58
Unnið að því að tryggja afkomu Grindvíkinga Unnið er að því að tryggja Grindvíkingum afkomu. Félagsmálaráðherra skoðar málið í samráði við aðra ráðherra. Ríkisstjórnin fundaði í hádeginu. Þar kynntu allir ráðherrar aðkomu sína að aðgerðum svo hægt væri að stilla strengi. Unnið er að því að koma upp samkomustað fyrir Grindvíkinga. Innlent 12. nóvember 2023 15:07
Sakna samráðs og vilja bjarga öllum dýrunum í Grindavík Dýraverndarfélög sakna samráðs Almannavarna vegna gæludýra sem eftir urðu í Grindavík. Í yfirlýsingu krefjast þau þess að dýrum verði bjargað í dag. Félögin hafa unnið aðgerðaáætlun til að staðsetja dýrin og telja nú að um 300 gæludýr hafi orðið eftir. Innlent 12. nóvember 2023 14:31
„Þessi risi sem hefur vaknað er að setja okkur í sérkennilegar aðstæður“ Innlent 12. nóvember 2023 12:58
Íbúar í Þórkötlustaðahverfi geta sótt nauðsynjar Íbúar í Þórkötlustaðahverfi í Grindavík fá leyfi til að fara inn á sín heimili og sækja það allra nauðsynlegasta. Ekki er svigrúm til að fara í önnur hverfi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Almannavarnir ítreka að íbúar eigi ekki að keyra í átt til Grindavíkur. Innlent 12. nóvember 2023 12:55