Spænski boltinn Ronaldinho seldur á tíu milljarða? Ítalskir fjölmiðlar greina frá því um helgina að Chelsea ætli sér að gera 83 milljóna punda mettilboð í framherjann Ronaldinho hjá Barcelona. Samkvæmt heimildum ítalska blaðsins Corriere dello Sport myndi brasilíski leikmaðurinn fá níu ára samning og hafa um tíu milljónir punda í árslaun. Sport 13.10.2005 19:29 Luxemburgo fær nóg Miklar vangaveltur hafa verið uppi um framtíð nokkurra leikmanna Real Madrid á síðustu vikum og mánuðum og svo virðist sem knattspyrnustjóranum brasilíska þyki nóg komið af svo góðu. Sport 13.10.2005 19:29 Saviola ekki áfram hjá Barcelona Argentínski sóknarmaðurinn Javier Saviola leikur ekki með Barcelona á næstu leiktíð en leikmaðurinn var lánaður til Mónakó á síðustu leiktíð. Það er ekki pláss fyrir Saviola í herbúðum Spánarmeistarana en hann lék mjög vel með argentínska landsliðinu í Álfukeppninni. Sport 13.10.2005 19:28 Helgi Sig mætir Ronaldinho Helgi Sigurðsson og félagar í danska úrvalsdeildarliðinu AGF Aarhus mæta Spánarmeisturum Barcelona í æfingaleik í knattspyrnu þann 25. júlí næstkomandi. Óhætt er að segja að Atletions Stadion, heimavöllur AGF verði þétt setinn þegar Helgi mætir Ronaldinho, Samuel Etoo og hinum snillingunum. Sport 13.10.2005 19:27 Robinho vill fara til Madrid Brasilíska undrabarnið Robinho hefur tekið af allan vafa um framtíð sína og segist vilja ganga til liðs við Real Madrid á Spáni, en hinn 21-árs gamli sóknarmaður hefur verið orðaður við félög á Englandi. Sport 13.10.2005 19:26 Arsenal keppir við Real um Robinho Real Madrid leiðir enn kapphlaupið um brasilíska ungstirnið Robinho, að sögn umboðsmanns leikmannsins, þrátt fyrir að Arsenal hafi gert formlegt 14 milljóna punda tilboð í hann um helgina. Sport 13.10.2005 19:25 Real Madrid býður í Lampard Enskir fjölmiðlar greindu frá því í morgun að Real Madríd hefði boðið 20 milljónir punda í miðjumann Chelsea, Frank Lampard. Að auki átti Chelsea að fá tvo leikmenn frá Madrídarliðinu, Michael Owen og Santiago Solari. Þetta er haft eftir umboðsmanni Lampards. Sport 13.10.2005 19:25 Kezman til Atletico Madrid Sóknarmaðurinn Mateja Kezman er á förum frá Chelsea til spænska liðsins Atletico Madrid að sögn umboðsmanns hans í dag. Kezman vill ólmur komast frá Chelsea þar sem hann sat meirihluta síðasta tímabils á varamannabekknum. Enskir og spænskir fjölmiðlar segja að félögin hafi komist að samkomulagi um kaupverð sem ekki hefur þó verið gefið upp. Sport 13.10.2005 19:25 Segist hafa hafnað tilboði Chelsea Kamerúnski knattspyrnumaðurinn Samuel Eto´o segist hafa hafnað girnilegu tilboði enska liðsins Chelsea og ákveðið í staðinn að framlengja samning sinn við Barcelona. Reiknað er með því að Eto´o skrifi undir samning til ársins 2010. Sport 13.10.2005 19:23 Eto´o vildi ekki til Chelsea Kamerúninn Samuel Eto´o hefur greint frá því að hann hafi hafnað tilboði frá Chelsea um að ganga til liðs við þá í sumar og mun þess í stað ganga frá nýjum samningi við Barcelona fljótlega. Sport 13.10.2005 19:23 Pires til Valencia? Robert Pires, miðvallarleikmaður Arsenal, gæti verið á förum frá félaginu til spænska liðsins Valencia fyrir þrjár milljónir punda. Sport 13.10.2005 19:23 Risakaup Real í bígerð? Real Madrid er tilbúið að borga 110 milljónir punda, eða rúmlega 13 milljarða króna, fyrir Steven Gerrard hjá Liverpool og Thierry Henry Arsenal að sögn enska götublaðsins <em>The Sun</em>. Madridarliðið hefur ekki unnið titil undanfarin tvö keppnistímabil. Sport 13.10.2005 19:21 Real Betis bikarmeistari á Spáni Real Betis tryggði sér í gærkvöld spænska konungsbikarinn í knattspyrnu þegar liðið sigraði Osasuna 2-1 í framlengdum úrslitaleik í Madríd. Sport 13.10.2005 19:21 Barcelona ekki á eftir Henry Joan Laporta, forseti Barcelona, hefur tekið af allan vafa og segir félagið ekki vera á höttunum eftir franska framherjanum Thierry Henry hjá Arsenal. Sport 13.10.2005 19:19 Owen fer ekki frá Madrid David Beckham heldur því fram að félagi sinn í enska landsliðinu og Real Madrid, sé ekki á förum frá félaginu, þrátt fyrir þrálátan orðróm þess efnis á síðustu vikum. Sport 13.10.2005 19:19 Ofurkæti Börsunga brýst út Einar Logi Vignisson hefur skrifað um boltann í Suður-Evrópu í Fréttablaðinu á sunnudögum í vetur og þessi sinni rennir hann yfir spænsku deildina og gerir upp tímabilið. Sport 13.10.2005 19:18 Kluivert til Valencia Hollenski landsliðsframherjinn Patrick Kluivert, sem leikið hefur með Newcastle undanfarin misseri, hefur samþykkt að skrifa undir þriggja ára samning við spænska liðið Valencia. Samningur Kluiverts við Newcastle rennur út í sumar. Sport 13.10.2005 19:18 Nistelrooy í skiptum fyrir Eto´o? Götublaðið <em>The Sun</em> greinir frá því að Manchester United hafi boðið Barcelona Ruud Van Nistelrooy í skiptum fyrir Samuel Eto´o. Ólíklegt er talið að Barcelona þekkist boðið en Joan Laporta, forseti Barcelona, segir að Eto´o verði aldrei seldur. Sport 13.10.2005 19:17 Villareal og Betis í forkeppnina Síðasta umferðin í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu fór fram um helgina. Villareal og Real Betis tryggðu sér 3. og 4. sætið í deildinni og taka því þátt í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu á næstu leiktíð. Sport 13.10.2005 19:17 Edu til Valencia Fyrrum miðvallarleikmaður Arsenal, Brasilíumaðurinn Edu, mun skrifa undir fimm ára samning við spænska stórliðið Valencia, en félagið greindi frá þessu í dag. Sport 13.10.2005 19:17 Jafntefli í lokaleik Barcelona Real Sociedad og Barcelona gerðu markalaust jafntefli í lokaumferðinni spænsku úrvalsdeildimnni í knattspyrnu og Real Madrid vann Real Zaragossa á útivelli með þremur mörkum gegn einu. Michel Owen, Roberto Carlos og Ronaldo skoruðu mörk Real Madrid. Barcelona, sem þegar hafði tryggt sér spænska meistaratitilinn, lauk keppni með 84 stig en Real Madrid varð fjórum stigum á eftir í öðru sæti. Sport 13.10.2005 19:17 Figo heilsar mér ekki lengur! Þjálfari Real Madrid, Vanderlei Luxemburgo upplýsti á blaðamannafundi í dag að samband hans við portúgalska landsliðsmanninn Luis Figo sé við frostmark. Figo hefur ekki heilsað þjálfaranum frá því hann missti byrjunarliðssæti sitt í liðinu snemma í apríl sl. Sport 13.10.2005 19:16 Segist ekki hafa boðið í Zlatan Real Madrid neitar að hafa boðið 30 milljónir punda í Svíann Zlatan Ibrahimovich hjá Juventus. Real hefur ekki unnið titil í tvö ár sem er talið óviðunandi á þeim bænum. Liðið eru orðað við fleiri stjörnur, þar á meðal Rio Ferdinand og Cristiano Ronaldo hjá Manchester United og Steven Gerrard, fyrirliða Liverpool. Sport 13.10.2005 19:15 Barcelona ekki á eftir Ferdinand Barcelona neitaði í dag þeim orðrómi að varnarmaðurinn sterki, Rio Ferdinand, væri á leið til félagsins og sögðu sögusagnirnar vera úr lausu lofti gripnar. Sport 13.10.2005 19:15 Viljandi gult hjá Beckham? Real Madrid og Atletico Madrid gerðu markalaust jafntefli í fremur bragðdaufum nágrannaslag í spænsku úrvalsdeildinni. David Beckham krækti sér í gult spjald í leiknum og það viljandi að talið er því hann verður í leikbanni í lokaumferðinni og getur því farið með enska landsliðinu til Bandaríkjanna um næstu helgi. Sport 13.10.2005 19:14 Del Horno staðfestir áhuga Chelsea Vinstri bakvörður Athletic Bilbao, Asier del Horno, hefur staðfest að Chelsea vilji fá hann og segir tilboðið vera of gott til að hafna. Sport 13.10.2005 19:14 Beckham viðrar óánægju sína Enski landsliðsfyrirliðinn hefur viðrað óánægju sína með að fara í gegnum annað tímabilið án bikars hjá Real Madrid. Þessi fyrrum leikmaður Manchester United hefur ekki unnið til verðlauna síðan hann flutti sig til Spánar fyrir tveimur árum. Sport 13.10.2005 19:14 Etoo ekki til sölu Forseti Barcelona, Joan Laporta, sagði í dag að hann myndi aldrei selja Samuel Etoo þrátt fyrir orðróm um áhuga Chelsea. Sport 13.10.2005 19:14 Jose Mari vill fá Abbiati Spænski framherjinn hjá Villarreal, Jose Mari, hefur skorað á félagið að fá varamarkvörð AC Milan, Cristiano Abbiati, til liðs við félagið. Villarreal er á höttunum eftir nýjum markverði þar sem Jose Reina, núverandi markvörður þeirra, mun að öllum líkindum skrifa undir hjá Liverpool í sumar. Sport 13.10.2005 19:14 Van Bommel semur við Barcelona Hollendingurinn Mark van Bommel skrifaði í morgun undir þriggja ára samning við spænsku meistarana Barcelona. Bommel er 28 ára og var fyrirliði PSV Eindhoven og varð fjórum sinnum hollenskur meistari með liðinu. Hann verður 17. Hollendingurinn sem spilar með Barcelona en sá fyrsti var Johan Cruyff árið 1973. Sport 13.10.2005 19:13 « ‹ 259 260 261 262 263 264 265 266 267 … 267 ›
Ronaldinho seldur á tíu milljarða? Ítalskir fjölmiðlar greina frá því um helgina að Chelsea ætli sér að gera 83 milljóna punda mettilboð í framherjann Ronaldinho hjá Barcelona. Samkvæmt heimildum ítalska blaðsins Corriere dello Sport myndi brasilíski leikmaðurinn fá níu ára samning og hafa um tíu milljónir punda í árslaun. Sport 13.10.2005 19:29
Luxemburgo fær nóg Miklar vangaveltur hafa verið uppi um framtíð nokkurra leikmanna Real Madrid á síðustu vikum og mánuðum og svo virðist sem knattspyrnustjóranum brasilíska þyki nóg komið af svo góðu. Sport 13.10.2005 19:29
Saviola ekki áfram hjá Barcelona Argentínski sóknarmaðurinn Javier Saviola leikur ekki með Barcelona á næstu leiktíð en leikmaðurinn var lánaður til Mónakó á síðustu leiktíð. Það er ekki pláss fyrir Saviola í herbúðum Spánarmeistarana en hann lék mjög vel með argentínska landsliðinu í Álfukeppninni. Sport 13.10.2005 19:28
Helgi Sig mætir Ronaldinho Helgi Sigurðsson og félagar í danska úrvalsdeildarliðinu AGF Aarhus mæta Spánarmeisturum Barcelona í æfingaleik í knattspyrnu þann 25. júlí næstkomandi. Óhætt er að segja að Atletions Stadion, heimavöllur AGF verði þétt setinn þegar Helgi mætir Ronaldinho, Samuel Etoo og hinum snillingunum. Sport 13.10.2005 19:27
Robinho vill fara til Madrid Brasilíska undrabarnið Robinho hefur tekið af allan vafa um framtíð sína og segist vilja ganga til liðs við Real Madrid á Spáni, en hinn 21-árs gamli sóknarmaður hefur verið orðaður við félög á Englandi. Sport 13.10.2005 19:26
Arsenal keppir við Real um Robinho Real Madrid leiðir enn kapphlaupið um brasilíska ungstirnið Robinho, að sögn umboðsmanns leikmannsins, þrátt fyrir að Arsenal hafi gert formlegt 14 milljóna punda tilboð í hann um helgina. Sport 13.10.2005 19:25
Real Madrid býður í Lampard Enskir fjölmiðlar greindu frá því í morgun að Real Madríd hefði boðið 20 milljónir punda í miðjumann Chelsea, Frank Lampard. Að auki átti Chelsea að fá tvo leikmenn frá Madrídarliðinu, Michael Owen og Santiago Solari. Þetta er haft eftir umboðsmanni Lampards. Sport 13.10.2005 19:25
Kezman til Atletico Madrid Sóknarmaðurinn Mateja Kezman er á förum frá Chelsea til spænska liðsins Atletico Madrid að sögn umboðsmanns hans í dag. Kezman vill ólmur komast frá Chelsea þar sem hann sat meirihluta síðasta tímabils á varamannabekknum. Enskir og spænskir fjölmiðlar segja að félögin hafi komist að samkomulagi um kaupverð sem ekki hefur þó verið gefið upp. Sport 13.10.2005 19:25
Segist hafa hafnað tilboði Chelsea Kamerúnski knattspyrnumaðurinn Samuel Eto´o segist hafa hafnað girnilegu tilboði enska liðsins Chelsea og ákveðið í staðinn að framlengja samning sinn við Barcelona. Reiknað er með því að Eto´o skrifi undir samning til ársins 2010. Sport 13.10.2005 19:23
Eto´o vildi ekki til Chelsea Kamerúninn Samuel Eto´o hefur greint frá því að hann hafi hafnað tilboði frá Chelsea um að ganga til liðs við þá í sumar og mun þess í stað ganga frá nýjum samningi við Barcelona fljótlega. Sport 13.10.2005 19:23
Pires til Valencia? Robert Pires, miðvallarleikmaður Arsenal, gæti verið á förum frá félaginu til spænska liðsins Valencia fyrir þrjár milljónir punda. Sport 13.10.2005 19:23
Risakaup Real í bígerð? Real Madrid er tilbúið að borga 110 milljónir punda, eða rúmlega 13 milljarða króna, fyrir Steven Gerrard hjá Liverpool og Thierry Henry Arsenal að sögn enska götublaðsins <em>The Sun</em>. Madridarliðið hefur ekki unnið titil undanfarin tvö keppnistímabil. Sport 13.10.2005 19:21
Real Betis bikarmeistari á Spáni Real Betis tryggði sér í gærkvöld spænska konungsbikarinn í knattspyrnu þegar liðið sigraði Osasuna 2-1 í framlengdum úrslitaleik í Madríd. Sport 13.10.2005 19:21
Barcelona ekki á eftir Henry Joan Laporta, forseti Barcelona, hefur tekið af allan vafa og segir félagið ekki vera á höttunum eftir franska framherjanum Thierry Henry hjá Arsenal. Sport 13.10.2005 19:19
Owen fer ekki frá Madrid David Beckham heldur því fram að félagi sinn í enska landsliðinu og Real Madrid, sé ekki á förum frá félaginu, þrátt fyrir þrálátan orðróm þess efnis á síðustu vikum. Sport 13.10.2005 19:19
Ofurkæti Börsunga brýst út Einar Logi Vignisson hefur skrifað um boltann í Suður-Evrópu í Fréttablaðinu á sunnudögum í vetur og þessi sinni rennir hann yfir spænsku deildina og gerir upp tímabilið. Sport 13.10.2005 19:18
Kluivert til Valencia Hollenski landsliðsframherjinn Patrick Kluivert, sem leikið hefur með Newcastle undanfarin misseri, hefur samþykkt að skrifa undir þriggja ára samning við spænska liðið Valencia. Samningur Kluiverts við Newcastle rennur út í sumar. Sport 13.10.2005 19:18
Nistelrooy í skiptum fyrir Eto´o? Götublaðið <em>The Sun</em> greinir frá því að Manchester United hafi boðið Barcelona Ruud Van Nistelrooy í skiptum fyrir Samuel Eto´o. Ólíklegt er talið að Barcelona þekkist boðið en Joan Laporta, forseti Barcelona, segir að Eto´o verði aldrei seldur. Sport 13.10.2005 19:17
Villareal og Betis í forkeppnina Síðasta umferðin í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu fór fram um helgina. Villareal og Real Betis tryggðu sér 3. og 4. sætið í deildinni og taka því þátt í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu á næstu leiktíð. Sport 13.10.2005 19:17
Edu til Valencia Fyrrum miðvallarleikmaður Arsenal, Brasilíumaðurinn Edu, mun skrifa undir fimm ára samning við spænska stórliðið Valencia, en félagið greindi frá þessu í dag. Sport 13.10.2005 19:17
Jafntefli í lokaleik Barcelona Real Sociedad og Barcelona gerðu markalaust jafntefli í lokaumferðinni spænsku úrvalsdeildimnni í knattspyrnu og Real Madrid vann Real Zaragossa á útivelli með þremur mörkum gegn einu. Michel Owen, Roberto Carlos og Ronaldo skoruðu mörk Real Madrid. Barcelona, sem þegar hafði tryggt sér spænska meistaratitilinn, lauk keppni með 84 stig en Real Madrid varð fjórum stigum á eftir í öðru sæti. Sport 13.10.2005 19:17
Figo heilsar mér ekki lengur! Þjálfari Real Madrid, Vanderlei Luxemburgo upplýsti á blaðamannafundi í dag að samband hans við portúgalska landsliðsmanninn Luis Figo sé við frostmark. Figo hefur ekki heilsað þjálfaranum frá því hann missti byrjunarliðssæti sitt í liðinu snemma í apríl sl. Sport 13.10.2005 19:16
Segist ekki hafa boðið í Zlatan Real Madrid neitar að hafa boðið 30 milljónir punda í Svíann Zlatan Ibrahimovich hjá Juventus. Real hefur ekki unnið titil í tvö ár sem er talið óviðunandi á þeim bænum. Liðið eru orðað við fleiri stjörnur, þar á meðal Rio Ferdinand og Cristiano Ronaldo hjá Manchester United og Steven Gerrard, fyrirliða Liverpool. Sport 13.10.2005 19:15
Barcelona ekki á eftir Ferdinand Barcelona neitaði í dag þeim orðrómi að varnarmaðurinn sterki, Rio Ferdinand, væri á leið til félagsins og sögðu sögusagnirnar vera úr lausu lofti gripnar. Sport 13.10.2005 19:15
Viljandi gult hjá Beckham? Real Madrid og Atletico Madrid gerðu markalaust jafntefli í fremur bragðdaufum nágrannaslag í spænsku úrvalsdeildinni. David Beckham krækti sér í gult spjald í leiknum og það viljandi að talið er því hann verður í leikbanni í lokaumferðinni og getur því farið með enska landsliðinu til Bandaríkjanna um næstu helgi. Sport 13.10.2005 19:14
Del Horno staðfestir áhuga Chelsea Vinstri bakvörður Athletic Bilbao, Asier del Horno, hefur staðfest að Chelsea vilji fá hann og segir tilboðið vera of gott til að hafna. Sport 13.10.2005 19:14
Beckham viðrar óánægju sína Enski landsliðsfyrirliðinn hefur viðrað óánægju sína með að fara í gegnum annað tímabilið án bikars hjá Real Madrid. Þessi fyrrum leikmaður Manchester United hefur ekki unnið til verðlauna síðan hann flutti sig til Spánar fyrir tveimur árum. Sport 13.10.2005 19:14
Etoo ekki til sölu Forseti Barcelona, Joan Laporta, sagði í dag að hann myndi aldrei selja Samuel Etoo þrátt fyrir orðróm um áhuga Chelsea. Sport 13.10.2005 19:14
Jose Mari vill fá Abbiati Spænski framherjinn hjá Villarreal, Jose Mari, hefur skorað á félagið að fá varamarkvörð AC Milan, Cristiano Abbiati, til liðs við félagið. Villarreal er á höttunum eftir nýjum markverði þar sem Jose Reina, núverandi markvörður þeirra, mun að öllum líkindum skrifa undir hjá Liverpool í sumar. Sport 13.10.2005 19:14
Van Bommel semur við Barcelona Hollendingurinn Mark van Bommel skrifaði í morgun undir þriggja ára samning við spænsku meistarana Barcelona. Bommel er 28 ára og var fyrirliði PSV Eindhoven og varð fjórum sinnum hollenskur meistari með liðinu. Hann verður 17. Hollendingurinn sem spilar með Barcelona en sá fyrsti var Johan Cruyff árið 1973. Sport 13.10.2005 19:13