Fíkniefnabrot Haldlögðu metmagn af kókaíni í sameiginlegri aðgerð 62 ríkja Kólumbísk yfirvöld hafa í samstarfi við aðila í 62 ríkjum lagt hald á 225 tonn af kókaíni á aðeins sex vikum. Um er að ræða metmagn í einni aðgerð. Erlent 28.11.2024 08:23 Fundu gríðarlegt magn fíkniefna í skrifstofuhúsnæði í Kópavogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur stórfellt fíkniefnamál til rannsóknar þar sem lagt hefur verið hald á tæplega þrjú kíló af MDMA-kristöllum og 1781 stykki af MDMA-töflum. Innlent 27.11.2024 08:01 Refsing milduð í stóra skútumálinu Landsréttur hefur mildað fangelsisrefsingu Henrys Fleischer, 35 ára Dana, um eitt ár. Hann var upphaflega dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir aðkomu hans að skútumálinu svokallaða í fyrra. Innlent 14.11.2024 15:26 Sigurður handtekinn í stærsta kristal-amfetamínmáli sögunnar Sigurður Ragnar Kristinsson, sem hefur verið sakfelldur fyrir stórfelld fíkniefna- og skattalagabrot, er á meðal handtekinna í umfangsmesta kristal-amfetamínmáli sem lögregla hefur haft afskipti af. Innlent 31.10.2024 18:01 „Þegar þú liggur yfir þessu dag og nótt þá byrjar þú að þekkja þá“ Sólheimajökulshópurinn sem Sólheimajökulsmálið svokallaða hefur verið kennt við var spjallhópur fólks á samfélagsmiðlinum Signal þar sem árshátíðarferð var skipulögð. Þar var rætt var um að fara á Sólheimajökul. Sá hópur er ekki beinlínis sá meinti glæpahópur sem er grunaður í málinu þó að þeir innihaldi að miklu leiti sömu meðlimi. Þetta kom fram í framburði lögreglumanns í Héraðsdómi Reykjavíkur. Innlent 31.10.2024 12:32 Tók til baka það sem hún sagði um grunaðan höfuðpaur Kona sem sagði við lögregluna í upphafi apríl að hún hefði fengið fíkniefni frá Jóni Inga Sveinssyni, grunuðum höfuðpaur í Sólheimajökulsmálinu svokallaða, kannaðist ekki við það þegar hún bar vitni í dómsal í dag. Innlent 30.10.2024 13:33 „Ég tek alveg á mig það sem ég gerði, en hitt er ekki ég“ Jón Ingi Sveinsson, grunaður höfuðpaur Sólheimajökulsmálsins svokallaða, gaf sína þriðju skýrslu í aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þar viðurkenndi hann að hafa átt þátt í innflutningi á fíkniefnum sem voru flutt til landsins með skemmtiferðaskipinu AIDAsol. Hann segist þó ekki kannast við að hafa skipulagt innflutninginn. Innlent 30.10.2024 10:34 Sakborningur á áttræðisaldri segist hafa fengið greiðslur frá syni sínum Karlmaður á áttræðisaldri sem er einn sakborninga Sólheimajökulsmálsins svokallaða gaf skýrslu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann er ákærður fyrir að hafa haft í vörslu sinni 170 grömm af amfetamíni og 667 grömm af kókaíni. Innlent 29.10.2024 16:35 Segist aldrei hafa skoðað í poka sem innihélt sextán milljónir Maður á fimmtugsaldri sem er ákærður fyrir peningaþvætti í tengslum við umfangsmikið fíkniefnamál, Sólheimajökulsmálið svokallaða, kannast við að hafa geymt hluti fyrir vin sinn sem er ákærður fyrir skipulagða brotastarfsemi í málinu. Innlent 29.10.2024 15:01 „Ég veit ekki af hverju hann segir ósatt“ Jón Ingi Sveinsson, grunaður höfuðpaur í umfangsmiklu fíkniefnamáli, gaf skýrslu í annað sinn á tveimur dögum í aðalmeðferð Sólheimajökulsmálsins svokallaða. Áætlað er að hann muni gefa skýrslu aftur. Innlent 29.10.2024 13:01 „Það var annað hvort þetta eða vændi“ Mæðgur sem eru sakborningar í umfangsmiklu fíkniefnamáli báru vitni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Móðirin, sem er á sjötugsaldri, er grunuð um að hafa haft umtalsvert magn fíkniefna á heimili sínu í Reykjavík. Dóttirin, sem er á fertugsaldri, er ákærð fyrir að hafa staðið í umfangsmikilli skipulagðri brotastarfsemi. Innlent 28.10.2024 16:41 „Er það ekki það sem fíkniefnasali gerir? Selur fíkniefni?“ Skýrslutökur í aðalmeðferð umfangsmikils fíkniefnamáls sem hefur farið fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag hefur einkennst af því að sakborningar neiti sök hvað varðar meint brot sem varða skipulagða brotastarfsemi. Þá neita þeir að tjá sig út í ýmis gögn í lögregluskýrslum. Innlent 28.10.2024 14:21 „Getum við verið sammála um að vera ósammála?“ „Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja með þetta. Ég allavega neita sök í þessu og hef ekki vitneskju um þessi fíkniefni,“ sagði Jón Ingi Sveinsson, grunaður höfuðpaur í umfangsmiku fíkniefnamáli, í upphafi aðalmeðferðar málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Innlent 28.10.2024 10:30 Þröng á þingi í umfangsmiklu fíkniefnamáli Það er þröng á þingi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag þar sem aðalmeðferð í stóra fíkniefnamálinu svokallaða fer fram. Átján eru talin tengjast þaulskipulögðum innflutningi á fíkniefnum til landsins með skemmtiferðaskipum. Verjandi fylgir hverjum sakborningi, blaðamenn eru þónokkrir og vegna fjöldans er aðalmeðferðinni streymt í annan dómsal. Innlent 28.10.2024 10:14 Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Yfirvöld í Marseille á Frakklandi segja átök glæpahópa um fíkniefnamarkaðinn í borginni vera að ná til afar ungra einstaklinga, sem séu ráðnir af hópunum til að fremja ofbeldisbrot. Erlent 7.10.2024 07:43 Þrír í haldi í fíkniefnamáli Þrír voru í dag úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald í héraðsdómi Reykjavíkur, grunaðir um aðild að fíkniefnamáli sem lögregla hefur til rannsóknar. Innlent 3.10.2024 21:56 Tekinn með efni eftir að vinur sló sig í höfuðið með skiptilykli Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft amfetamín og nokkrar töflur af róandi og kvíðastillandi lyfi í fórum sínum. Lögregla framkvæmdi húsleit heima hjá honum eftir að hann hafði hringt á lögreglu vegna þess að vinur hans hafi slegið sjálfan sig í höfuðið með skiptilykli. Innlent 30.9.2024 11:11 Varla komist í kast við lögin fyrr en hann flutti kókaín til landsins Albert Lleshi hefur hlotið tveggja ára og átta mánaða langan fangelsisdóm fyrir að flytja rétt rúm tvö kíló af kókaíni til landsins. Innlent 26.9.2024 14:10 Eiturlyf og vopn fundust á heimili hins handtekna á Bakkafirði Sveitastjóri í Langanesbyggð segist hafa rætt við íbúa á Bakkafirði sem er ósáttur við aðgerðir sérsveitarinnar á mánudag og afskiptasemi og neikvæðni í samfélaginu. Pólskt par var handtekið grunað um fíkniefnaframleiðslu og er karlmaðurinn eftirlýstur í heimalandinu fyrir fjársvik. Sveitastjórinn vonast til að öldur lægi. Ríkislögreglustjóri segir aðgerðir sérsveitar erfiðar fyrir alla. Innlent 25.9.2024 14:07 Tveir hafa játað sök í stóra fíkniefnamálinu sem fer ekki fet Aðalmeðferð umfangsmikils fíkniefnamáls, sem hefur verið kennt við skemmtiferðaskip en líka verið kallað stóra fíkniefnamálið, mun fara fram í sal 101 í Héraðsdómi Reykjavíkur dagana 28. október til 6. nóvember. Innlent 24.9.2024 15:14 Máttu vita að eiturlyfjasalinn þeirra væri að flytja inn eiturlyf Fjórir hlutu heldur þunga fangelsisdóma á dögunum fyrir innflutning mikils magns amfetamínsbasa. Höfuðpaurinn í málinu fékk viðskiptavini sína til þess að sækja fyrir sig flöskur sem innihéldu efnin. Fólkið var talið hafa mátt vita að flöskurnar innihéldu eiturlyf, enda hafi maðurinn verið eiturlyfjasali þess. Innlent 23.9.2024 12:04 Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Tveir menn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna kókaínsinnflutnings í póstsendingu í vikunni. Öðrum þeirra var sleppt úr haldi í dag. Innlent 20.9.2024 21:29 Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Knattspyrnumaðurinn Jay Emmanuel-Thomas, fyrrverandi leikmaður Arsenal, var handtekinn og ákærður fyrir að flytja inn fíkniefni til Bretlands. Enski boltinn 19.9.2024 13:31 Á þriðja hundrað kíló tekin á landamærunum Ríflega 230 kíló, tæpir tíu lítrar og 40 þúsund töflur af ólöglegum fíkniefnum hafa verið haldlögð á landamærum Íslands það sem af er þessu ári. Alls hefur verið lagt hald á 21 tegund fíkniefna, þar á meðal rúmlega 22,5 kíló af kókaíni, yfir 140 kíló af marijúana og tæplega nítján þúsund töflur af MDMA. Í heildina er um að ræða nokkuð meira magn fíkniefna en haldlagt var á sama tímabili í fyrra, að undantöldum fíkniefnum í vökvaformi sem haldlögð voru í meira magni á síðasta ári. Innlent 5.9.2024 07:03 Yfir áttatíu milljónir í reiðufé haldlagðar á landamærum Tollayfirvöld hafa það sem af er þessu ári lagt hald á tæplega 82,5 milljónir í reiðufé á landamærum Íslands. Það er meira fjármagn en haldlagt var á landamærum allt árið í fyrra þegar lagt var hald á rúmar 75 milljónir króna. Innlent 4.9.2024 07:03 Íslensk kona ákærð fyrir fíkniefnainnflutning í Færeyjum Íslensk kona er meðal fimm ákærðra í stóru fíkniefnamáli í Færeyjum. Þau eru ákærð fyrir að hafa smyglað 23 kílóum af hassi og 3,8 kílóum af amfetamíni til eyjanna. Innlent 31.8.2024 12:24 Framburður lykilvitnis fyrir dómi ekki talinn trúverðugur Héraðsdómur Reykjavíkur telur að framburður Péturs Jökuls Jónassonar í stóra kókaínmálinu hafi í öllum aðalatriðum verið ótrúverðugur. Hið sama megi segja um framburð lykilvitnis í málinu sem hafi um langt skeið verið útsettur fyrir verulegri hættu á eftirmálum ef hann tengdi Pétur Jökul við málið. Innlent 30.8.2024 11:48 Kortleggja brotamenn með tengsl við Suður-Ameríku Aðstoðaryfirlögregluþjónn í greiningardeild ríkislögreglustjóra segir um fimmtán til tuttugu brotahópa starfa með skipulögðum hætti hérlendis. Um fjölþjóðlega hópa sé að ræða, en nýlega hafi lögregla fengið upplýsingar um brotamenn hér á landi með tengsl við Suður-Ameríku. Innlent 27.8.2024 19:58 Fluttu kókaín til landsins í kaffikönnu og útvarpstæki Þrír menn hafa verið dæmdir til fangelsisvistar fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot eftir að hafa reynt að smygla kókaíni til landsins. Annars vegar voru efnin flutt í kaffikönnu frá Frakklandi, og hins vegar í útvarpstæki frá Sviss. Innlent 26.8.2024 23:55 Fær Amsterdam-reiðuféð ekki til baka frá lögreglu Landsréttur hefur hafnað kröfu manns um afhendingu reiðufjár upp á sex þúsund evrur, sem lögregla lagði hald á í Leifsstöð. Peninginn hafði maðurinn meðferðis á leið til Amsterdam með félögunum. Innlent 21.8.2024 13:38 « ‹ 1 2 3 4 5 6 … 14 ›
Haldlögðu metmagn af kókaíni í sameiginlegri aðgerð 62 ríkja Kólumbísk yfirvöld hafa í samstarfi við aðila í 62 ríkjum lagt hald á 225 tonn af kókaíni á aðeins sex vikum. Um er að ræða metmagn í einni aðgerð. Erlent 28.11.2024 08:23
Fundu gríðarlegt magn fíkniefna í skrifstofuhúsnæði í Kópavogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur stórfellt fíkniefnamál til rannsóknar þar sem lagt hefur verið hald á tæplega þrjú kíló af MDMA-kristöllum og 1781 stykki af MDMA-töflum. Innlent 27.11.2024 08:01
Refsing milduð í stóra skútumálinu Landsréttur hefur mildað fangelsisrefsingu Henrys Fleischer, 35 ára Dana, um eitt ár. Hann var upphaflega dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir aðkomu hans að skútumálinu svokallaða í fyrra. Innlent 14.11.2024 15:26
Sigurður handtekinn í stærsta kristal-amfetamínmáli sögunnar Sigurður Ragnar Kristinsson, sem hefur verið sakfelldur fyrir stórfelld fíkniefna- og skattalagabrot, er á meðal handtekinna í umfangsmesta kristal-amfetamínmáli sem lögregla hefur haft afskipti af. Innlent 31.10.2024 18:01
„Þegar þú liggur yfir þessu dag og nótt þá byrjar þú að þekkja þá“ Sólheimajökulshópurinn sem Sólheimajökulsmálið svokallaða hefur verið kennt við var spjallhópur fólks á samfélagsmiðlinum Signal þar sem árshátíðarferð var skipulögð. Þar var rætt var um að fara á Sólheimajökul. Sá hópur er ekki beinlínis sá meinti glæpahópur sem er grunaður í málinu þó að þeir innihaldi að miklu leiti sömu meðlimi. Þetta kom fram í framburði lögreglumanns í Héraðsdómi Reykjavíkur. Innlent 31.10.2024 12:32
Tók til baka það sem hún sagði um grunaðan höfuðpaur Kona sem sagði við lögregluna í upphafi apríl að hún hefði fengið fíkniefni frá Jóni Inga Sveinssyni, grunuðum höfuðpaur í Sólheimajökulsmálinu svokallaða, kannaðist ekki við það þegar hún bar vitni í dómsal í dag. Innlent 30.10.2024 13:33
„Ég tek alveg á mig það sem ég gerði, en hitt er ekki ég“ Jón Ingi Sveinsson, grunaður höfuðpaur Sólheimajökulsmálsins svokallaða, gaf sína þriðju skýrslu í aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þar viðurkenndi hann að hafa átt þátt í innflutningi á fíkniefnum sem voru flutt til landsins með skemmtiferðaskipinu AIDAsol. Hann segist þó ekki kannast við að hafa skipulagt innflutninginn. Innlent 30.10.2024 10:34
Sakborningur á áttræðisaldri segist hafa fengið greiðslur frá syni sínum Karlmaður á áttræðisaldri sem er einn sakborninga Sólheimajökulsmálsins svokallaða gaf skýrslu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann er ákærður fyrir að hafa haft í vörslu sinni 170 grömm af amfetamíni og 667 grömm af kókaíni. Innlent 29.10.2024 16:35
Segist aldrei hafa skoðað í poka sem innihélt sextán milljónir Maður á fimmtugsaldri sem er ákærður fyrir peningaþvætti í tengslum við umfangsmikið fíkniefnamál, Sólheimajökulsmálið svokallaða, kannast við að hafa geymt hluti fyrir vin sinn sem er ákærður fyrir skipulagða brotastarfsemi í málinu. Innlent 29.10.2024 15:01
„Ég veit ekki af hverju hann segir ósatt“ Jón Ingi Sveinsson, grunaður höfuðpaur í umfangsmiklu fíkniefnamáli, gaf skýrslu í annað sinn á tveimur dögum í aðalmeðferð Sólheimajökulsmálsins svokallaða. Áætlað er að hann muni gefa skýrslu aftur. Innlent 29.10.2024 13:01
„Það var annað hvort þetta eða vændi“ Mæðgur sem eru sakborningar í umfangsmiklu fíkniefnamáli báru vitni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Móðirin, sem er á sjötugsaldri, er grunuð um að hafa haft umtalsvert magn fíkniefna á heimili sínu í Reykjavík. Dóttirin, sem er á fertugsaldri, er ákærð fyrir að hafa staðið í umfangsmikilli skipulagðri brotastarfsemi. Innlent 28.10.2024 16:41
„Er það ekki það sem fíkniefnasali gerir? Selur fíkniefni?“ Skýrslutökur í aðalmeðferð umfangsmikils fíkniefnamáls sem hefur farið fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag hefur einkennst af því að sakborningar neiti sök hvað varðar meint brot sem varða skipulagða brotastarfsemi. Þá neita þeir að tjá sig út í ýmis gögn í lögregluskýrslum. Innlent 28.10.2024 14:21
„Getum við verið sammála um að vera ósammála?“ „Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja með þetta. Ég allavega neita sök í þessu og hef ekki vitneskju um þessi fíkniefni,“ sagði Jón Ingi Sveinsson, grunaður höfuðpaur í umfangsmiku fíkniefnamáli, í upphafi aðalmeðferðar málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Innlent 28.10.2024 10:30
Þröng á þingi í umfangsmiklu fíkniefnamáli Það er þröng á þingi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag þar sem aðalmeðferð í stóra fíkniefnamálinu svokallaða fer fram. Átján eru talin tengjast þaulskipulögðum innflutningi á fíkniefnum til landsins með skemmtiferðaskipum. Verjandi fylgir hverjum sakborningi, blaðamenn eru þónokkrir og vegna fjöldans er aðalmeðferðinni streymt í annan dómsal. Innlent 28.10.2024 10:14
Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Yfirvöld í Marseille á Frakklandi segja átök glæpahópa um fíkniefnamarkaðinn í borginni vera að ná til afar ungra einstaklinga, sem séu ráðnir af hópunum til að fremja ofbeldisbrot. Erlent 7.10.2024 07:43
Þrír í haldi í fíkniefnamáli Þrír voru í dag úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald í héraðsdómi Reykjavíkur, grunaðir um aðild að fíkniefnamáli sem lögregla hefur til rannsóknar. Innlent 3.10.2024 21:56
Tekinn með efni eftir að vinur sló sig í höfuðið með skiptilykli Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft amfetamín og nokkrar töflur af róandi og kvíðastillandi lyfi í fórum sínum. Lögregla framkvæmdi húsleit heima hjá honum eftir að hann hafði hringt á lögreglu vegna þess að vinur hans hafi slegið sjálfan sig í höfuðið með skiptilykli. Innlent 30.9.2024 11:11
Varla komist í kast við lögin fyrr en hann flutti kókaín til landsins Albert Lleshi hefur hlotið tveggja ára og átta mánaða langan fangelsisdóm fyrir að flytja rétt rúm tvö kíló af kókaíni til landsins. Innlent 26.9.2024 14:10
Eiturlyf og vopn fundust á heimili hins handtekna á Bakkafirði Sveitastjóri í Langanesbyggð segist hafa rætt við íbúa á Bakkafirði sem er ósáttur við aðgerðir sérsveitarinnar á mánudag og afskiptasemi og neikvæðni í samfélaginu. Pólskt par var handtekið grunað um fíkniefnaframleiðslu og er karlmaðurinn eftirlýstur í heimalandinu fyrir fjársvik. Sveitastjórinn vonast til að öldur lægi. Ríkislögreglustjóri segir aðgerðir sérsveitar erfiðar fyrir alla. Innlent 25.9.2024 14:07
Tveir hafa játað sök í stóra fíkniefnamálinu sem fer ekki fet Aðalmeðferð umfangsmikils fíkniefnamáls, sem hefur verið kennt við skemmtiferðaskip en líka verið kallað stóra fíkniefnamálið, mun fara fram í sal 101 í Héraðsdómi Reykjavíkur dagana 28. október til 6. nóvember. Innlent 24.9.2024 15:14
Máttu vita að eiturlyfjasalinn þeirra væri að flytja inn eiturlyf Fjórir hlutu heldur þunga fangelsisdóma á dögunum fyrir innflutning mikils magns amfetamínsbasa. Höfuðpaurinn í málinu fékk viðskiptavini sína til þess að sækja fyrir sig flöskur sem innihéldu efnin. Fólkið var talið hafa mátt vita að flöskurnar innihéldu eiturlyf, enda hafi maðurinn verið eiturlyfjasali þess. Innlent 23.9.2024 12:04
Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Tveir menn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna kókaínsinnflutnings í póstsendingu í vikunni. Öðrum þeirra var sleppt úr haldi í dag. Innlent 20.9.2024 21:29
Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Knattspyrnumaðurinn Jay Emmanuel-Thomas, fyrrverandi leikmaður Arsenal, var handtekinn og ákærður fyrir að flytja inn fíkniefni til Bretlands. Enski boltinn 19.9.2024 13:31
Á þriðja hundrað kíló tekin á landamærunum Ríflega 230 kíló, tæpir tíu lítrar og 40 þúsund töflur af ólöglegum fíkniefnum hafa verið haldlögð á landamærum Íslands það sem af er þessu ári. Alls hefur verið lagt hald á 21 tegund fíkniefna, þar á meðal rúmlega 22,5 kíló af kókaíni, yfir 140 kíló af marijúana og tæplega nítján þúsund töflur af MDMA. Í heildina er um að ræða nokkuð meira magn fíkniefna en haldlagt var á sama tímabili í fyrra, að undantöldum fíkniefnum í vökvaformi sem haldlögð voru í meira magni á síðasta ári. Innlent 5.9.2024 07:03
Yfir áttatíu milljónir í reiðufé haldlagðar á landamærum Tollayfirvöld hafa það sem af er þessu ári lagt hald á tæplega 82,5 milljónir í reiðufé á landamærum Íslands. Það er meira fjármagn en haldlagt var á landamærum allt árið í fyrra þegar lagt var hald á rúmar 75 milljónir króna. Innlent 4.9.2024 07:03
Íslensk kona ákærð fyrir fíkniefnainnflutning í Færeyjum Íslensk kona er meðal fimm ákærðra í stóru fíkniefnamáli í Færeyjum. Þau eru ákærð fyrir að hafa smyglað 23 kílóum af hassi og 3,8 kílóum af amfetamíni til eyjanna. Innlent 31.8.2024 12:24
Framburður lykilvitnis fyrir dómi ekki talinn trúverðugur Héraðsdómur Reykjavíkur telur að framburður Péturs Jökuls Jónassonar í stóra kókaínmálinu hafi í öllum aðalatriðum verið ótrúverðugur. Hið sama megi segja um framburð lykilvitnis í málinu sem hafi um langt skeið verið útsettur fyrir verulegri hættu á eftirmálum ef hann tengdi Pétur Jökul við málið. Innlent 30.8.2024 11:48
Kortleggja brotamenn með tengsl við Suður-Ameríku Aðstoðaryfirlögregluþjónn í greiningardeild ríkislögreglustjóra segir um fimmtán til tuttugu brotahópa starfa með skipulögðum hætti hérlendis. Um fjölþjóðlega hópa sé að ræða, en nýlega hafi lögregla fengið upplýsingar um brotamenn hér á landi með tengsl við Suður-Ameríku. Innlent 27.8.2024 19:58
Fluttu kókaín til landsins í kaffikönnu og útvarpstæki Þrír menn hafa verið dæmdir til fangelsisvistar fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot eftir að hafa reynt að smygla kókaíni til landsins. Annars vegar voru efnin flutt í kaffikönnu frá Frakklandi, og hins vegar í útvarpstæki frá Sviss. Innlent 26.8.2024 23:55
Fær Amsterdam-reiðuféð ekki til baka frá lögreglu Landsréttur hefur hafnað kröfu manns um afhendingu reiðufjár upp á sex þúsund evrur, sem lögregla lagði hald á í Leifsstöð. Peninginn hafði maðurinn meðferðis á leið til Amsterdam með félögunum. Innlent 21.8.2024 13:38