Skoðun

Svo skal böl bæta

Árni Finnsson skrifar
Nú verður ekki lengur hjá því komist að viðurkenna að loftslagsbreytingar eru staðreynd. Tugmilljónir manna munu flosna upp og lenda á vergangi verði ekki dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda hið fyrsta. Vísindasamfélagið er einhuga um að helminga verði útblástur í heiminum fyrir miðja þessa öld miðað við 1990.

Enn eru þó nokkrar eftirlegukindur eftir sem ekkert vilja aðhafast. Eftir að hafa um áraraðir vitnað í hvern tóbaksvísindamanninn á fætur öðrum um markleysi loftslagsbreytinga vitna nú sumir hægrimenn ákaft til skrifa Bjørns Lomborgs – sem ekki dregur loftslagsbreytingar í efa. Heldur er kenning Lomborgs sú, að hvað sem loftslagsbreytingum líði, þá borgi sig ekki að gera neitt í málinu – það þýði ekkert og sé alltof dýrt. Að hans mati eru önnur vandamál meira knýjandi. „Svo skal böl bæta að benda á eitthvað annað,“ er rökfærsla Lomborgs.

Til allrar hamingju eru slík sjónarmið ekki lengur ráðandi meðal hægrimanna. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hefur tekið forystu um alþjóðlegar aðgerðir um framhald Kyoto-bókunarinnar. Annar hægrimaður, Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, beitir sér nú fyrir hækkun bensínskatts til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og telur loftslagsmálin mikilvægasta viðfangsefni sinnar ríkisstjórnar. Leiðtogi íhaldsmanna í Bretlandi keppir nú við Gordon Brown um hylli kjósenda með yfirboðum í loftslagsmálum. Sennilega er Geir H. Haarde eini leiðtogi hægrimanna í Evrópu sem enn hefur ekki látið að sér kveða í umræðu um loftslagsmál. Skýringin er vafalaust sú að innan Sjálfstæðisflokksins eru áhrifamiklir einstaklingar sem ekki má styggja og geta ekki viðurkennt að þeir höfðu rangt fyrir sér þegar þeir trúðu málpípum olíurisans Exxon Mobil. Þessir menn eru nú komnir í sömu stöðu og gömlu kommarnir sem ekki vildu viðurkenna tilvist Gúlagsins en töluðu þeim mun meira um illvirki Bandaríkjamanna. Lomborg er þessum hægrimönnum huggun harmi gegn – en það verður skammgóður vermir.

Höfundur er formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands.


Tengdar fréttir

Lyf og orka

Tveir ráðherrar, iðnaðarráðherra og heilbrigðisráðherra, hafa nú með nokkurra daga bili lagt línur hvor á sínu sviði um mikilvægar kerfisbreytingar. Um jafn ólíka hluti og lyf og orku hafa þeir leitað lausna með því að leggja á ráðin um að brjóta upp skipulag sem ekki svarar kröfum nýs tíma.




Skoðun

Skoðun

Hin­segin réttindi til fram­tíðar

Bjarndís Helga Tómasdóttir,Kristmundur Pétursson,Vera Illugadóttir,Jóhannes Þór Skúlason,Hannes Sasi Pálsson,Hrönn Svansdóttir,Sveinn Kjartansson skrifar

Sjá meira


×