Skoðun

Martröð í Ráðhúsinu

Jón Kaldal skrifar
Það þarf ekki að koma á óvart að fjórði meirihlutinn verði myndaður í borgarstjórn Reykjavíkur áður en þetta kjörtímabil er úti.

Óvinsældir núverandi meirihluta Sjálfstæðisflokks og Ólafs F. Magnússonar eru sögulegar. Engin teikn eru á lofti um að þar sé breytinga að vænta.

Þvert á móti er stjórnunar­stíll borgarstjóra af því tagi að sjálfstæðismenn munu þurfa að halda áfram að ræsa út slökkvilið sitt með reglulegu millibili á meðan á samstarfinu við hann stendur.

Rétt um tvö hundruð dagar eru nú liðnir frá því að Sjálfstæðis­flokkurinn leiddi Ólaf í stól borgarstjóra. Það þarf ekki mikla innsýn í taflmennsku stjórnmálanna til að gera sér í hugarlund að sjálfstæðismenn hafi reiknað með að Ólafi myndi þykja svo vænt um stólinn og keðjuna að hann yrði þeim leiðitamur við stjórn borgarinnar. Annað hefur heldur betur komið á daginn. Ólafur hefur ítrekað tekið af allan vafa um að hann á sig sjálfur og hefur ekki sýnt nokkurn vilja til að gera málamiðlanir um stefnumál sín.

Ólafur er örugglega mun klókari stjórnmálamaður en samherjar og andstæðingar hans ætla honum.

Hann metur greinilega stöðuna á þá leið að hann hafi hreðjatak á Sjálfstæðisflokknum í borginni. Ástæðan er einföld. Þegar sjálfstæðismenn snöruðu Ólafi úr Tjarnarkvartettinum lögðu þeir tilveru sína í hendur honum út kjörtímabilið. Í fyrsta lagi vegna þess að með þeim gjörningi gengu þeir svo fram af öðrum flokkum í borginni að þar yrði ekki komið að opnum dyrum um mögulegt samstarf. Í öðru lagi, og umfram allt, gæti Sjálfstæðisflokkurinn ekki sýnt það fádæma ábyrgðarleysi að hafa frumkvæðið að myndun þriggja meirihluta á einu kjörtímabili.

Eins og málin hafa hins vegar þróast gæti það þó verið skárri kostur en að halda núverandi samstarfi áfram.

Í nýrri skoðanakönnun Capacent, fyrir fréttastofu Stöðvar 2, kemur fram að einungis 28,5 prósent borgarbúa styðja flokkana sem mynda meirihlutann. Ef kosið yrði nú fengju Samfylkingin og Vinstri græn um 70 prósent atkvæða. Ólafur og Sjálfstæðisflokkur myndu sem sagt gjalda afhroð. En það myndi Framsóknarflokkurinn líka gera og sá möguleiki hlýtur að opna sprungur í þá miklu samstöðu sem flokkarnir í minnihlutanum hafa sýnt hingað til.

Framsóknarflokkurinn nýtur hrakfara meirihlutans á engan hátt ólíkt hinum flokkunum í minnihlutanum. Þegar svo er komið hlýtur fulltrúi flokksins, Óskar Bergsson, að hugleiða ásamt baklandi sínu, hvort hann hafi ekki allt að vinna með að komast í borgarstjórn. Verða riddarinn á hvíta hestinum sem kemur á ró í ráðhúsinu, svo borgarbúar geti andað léttar.

Óskar og Framsóknarflokkurinn hafa að minnsta kosti engu að tapa. Sjálfstæðisflokkurinn, varla heldur. Innan raða hans er mikill áhugi á að koma áformum um Bitruvirkjun aftur á koppinn. Þar er komið kjörið mál til að láta brjóta á. Óskar er yfirlýstur stuðningsmaður Bitruvirkjunar. Borgarstjóri andstæðingur.










Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×