Evrópa á uppleið 29. maí 2008 09:27 Miðlarar að störfum í kauphöllinni í Franfurt í Þýskalandi. Mynd/AFP
Næstsíðasti viðskiptadagur vikunnar á evrópskum fjármálamörkuðum hefur byrjað ágætlega en gengi hlutabréfa hefur almennt hækkað í dag. Þá hækkuðu helstu vísitölur í Asíu sömuleiðis talsvert í morgun eftir að sýnt var fram á að eftirspurn eftir varanlegum neysluvörum var meiri í Bandaríkjunum á fyrstu þremur mánuðum ársins en reiknað hafði verið með. Þegar tölurnar lágu fyrir í Bandaríkjunum í gær jókst bjartsýni fjárfesta á horfur í efnahagslífinu og smitaði það út frá sér til lands hinnar rísandi sólar. Nikkei-vísitalan í Bandaríkjunum hækkaði um rétt rúm þrjú prósent en vísitölur á öðrum mörkuðum í Asíu minna. Þá hefur FTSE-vísitalan í Bretlandi hækkað um 0,82 prósent það sem af er dags, Dax-vísitalan í Þýskalandi um 0,46 prósent og Cac 40-vísitalan í Frakklandi um 0,37 prósent. Þróunin hefur sömuleiðis verið jákvæð á norrænum hlutabréfamörkuðum. C-20 vísitalan í kauphöllinni í Kaupmannahöfn hefur hækkað um 0,32 prósent og OMX 25-vísistalan í Helsinki í Finnlandi um 0,74 prósent. Vísitalan í kauphöllinni í Svíþjóð hefur hins vegar lækkað um 0,42 prósent á sama tíma.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið 75 sagt upp í þremur hópuppsögnum Viðskipti innlent Leggja meiri áherslu á Prís og segja upp starfsmönnum Viðskipti innlent Gunnars loksins selt Viðskipti innlent Tveimur verslunum Krambúðarinnar lokað Viðskipti innlent Danska ríkið kaupir Kastrup Viðskipti erlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri hjá Sýn Viðskipti innlent Fjárfestingararmur Samherja bætir við sig í Högum Viðskipti innlent Tryggja tólf milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent „Hápunktur morgunsins er síðan rómantíski kaffibíltúrinn“ Atvinnulíf Uppsagnir hjá þjónustumiðstöð Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Danska ríkið kaupir Kastrup Ungum Áströlum bannað að nota samfélagsmiðla Vona að Musk takmarki tolla Trumps Vilja þvinga Google til að selja Chrome Sósustormur í Bretlandi rakinn til verkfalls hjá Bakkavör Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sjá meira