Matur

Rjómalöguð sveppasúpa

60gr smjör

400gr sveppir

60gr hveiti

6 dl kjúklingasoð

1 dl mjólk

3 dl rjómi

1 msk steinselja

1 msk sítrónusafi

Salt og pipar

Steinselja í skraut

Sveppirnir eru steiktir uppúr smjöri og hveitinu er blandað saman við, þá er soðinu blandað saman við og hrært þar til kekkjalaust. Þá er mjólk og rjómi blandað saman við ásamt sítrónusafa og kryddi, látið krauma í c.a 5-6 mín við mjög vægan hita. Þegar súpan er kominn í skál er dass af þeyttum rjómatopp sett í súpuna ásamt steinselju skrauti yfir. Borið stax fram með brauði.

Ath gott er að setja dass af koníaki eða sherry í sveppasúpu, en má auðvitað sleppa.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.