Matur

Súkkulaðisúpa

300gr 70% súkkulaði

1 lítri mjólk

1 tsk sultuhleypir + 1 msk sykur

Börkur ar einni lime

c.a 10 stk af anis

Mjólkin er hituð að suðu með anis, lime berkinum og sultuhleypi. Hellið svo helmingnum af mjólkinni yfir súkkulaðið og leysið súkkulaðið varlega upp, hellið svo restinni yfir og blandið vel saman, látið súpuna standa helst yfir nótt. Gott er að píska súpuna aðeins áður en hún er borinn fram með pískara.

Marengs:

200gr eggjahvítur

200gr sykur

50gr ristaður kókos

2 stk matarlímsblöð

1 dós kókosmjólk

3 dl rjómi

Eggjahvíturnar eru stífþeyttar með sykrinum. Kókosmjólkin er létt hituð yfir líkamshita, matarlímið er látið í kalt vatn og látið svo leysast upp í volgri kókosmjólkinni. Kókosmjólkinni er svo blandað saman við þeytinguna ásamt létt þeyttum rjómanum. Að lokum er kókosinn settur saman við, allt er sett í skál og látið standa í kæli, helst yfir nótt.

Skrautkex:

130gr eggjahvítur

50gr flórsykur

50gr hveiti

100gr maesenamjöl

Blandið öllu rólega saman í gott deig og látið standa aðeins í kæli.

Setjið isio olíu á heita pönnu og hitið vel (170-180°) setjið deigið í sprautu poka og gerið lítið gat. Sprautið deiginu óreglulega í hringi ofaní pottinn og steikið á báðum hliðum þar til gullið, setjið yfir á pappir og þerrið.

Ferskur ananas

Ferskt mangó

Afhýðið ávextina og skerið niður í litla bita. Bræðið c.a 100gr af sykri og setjið 1 msk af sykri útá, þegar góð karmella er kominn setjum við ávextina yfir og veltum þeim uppúr karmelunni, borið fram heitt.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.