Matur

Reykt önd með hindberja vinagrettu

Tilbúin reykt önd

Frice salat eða annað fallegt salat

Kasjuhnetur

Sykur

Púrrulaukur

Hinderjaedik

Ólífuolía

Rifsber

Parmesan

Ólífuostabrauð

Hneturnar eru létt ristaðar á þurri pönnu, þá er 2-3 tsk af sykri blandað saman við og hnetunum vellt uppúr bræddum sykrinum, kælið svo hneturnar. Púrrulaukurinn er skorinn í langar og þunnar ræmur og steiktur uppúr mikið af olíu þar til vel steiktur, þerrið svo laukinn.

Öndin er skorin niður í þunnar sneiðar, salat er sett á disk og öndin sett við hliðina á salatinu. Dassið yfir edikinu ásamt olíu. Setjið hneurnar yfir allan diskin. Setjið svo púrrulaukinn yfir öndina ásamt rifsberjunum. Skerið svo parmesan gróft yfir allan diskinn.

Skerið ólífuostabrauðið niður í langar en þunnar sneiðar og létt ristið á pönnu með dass af olíu yfir

Vínið með öndinni:

Duval - Leroy er ekkja og er hún að gera allt vitlaust um allan heim með sínu desine á flöskunum, Verðlaun og aftur verðlaun  Þetta er Champagne kallað "Paris"  og er það flokkað þurt, eða (Brut)  Það er hinsvegar með ágætum ávöxt og gerir vínið fallegt og smá sætt. 

Rosalega gott vín á góðu verði.  Það má ekki gleyma að Kampavín er ekki síðri kostur en vín með mat, þar sem það passar með öllu sem það kemur nálægt.  Vinagr... sósan ætti að gefa víninu inspítingu.....








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.