Matur

Taílenskur Fiskmarkaður

Hrefna Rósa Sætran, eigandi Fiskmarkaðarins.
Hrefna Rósa Sætran, eigandi Fiskmarkaðarins. Mynd/Stefán
Taílenskur matur verður í forgrunni á Fiskmarkaðnum á meðan Food and Fun stendur yfir því gestakokkurinn Morten Döjfstrup starfar á taílenska veitingahúsinu Kiin Kiin í Kaupmannahöfn.

„Kiin Kiin sérhæfir sig í flottum taílenskum mat, sem er öðruvísi en heimilismaturinn sem er í boði á hefðbundnum taílenskum veitingahúsum,“ segir Hrefna Rósa Sætran, eigandi Fiskmarkaðarins.

„Við reynum alltaf að fá gestakokkana til að nota íslenskt hráefni en þeir setja síðan sinn stíl á matinn þannig að gestir eiga von á allt annarri upplifun en þeir eru vanir á Fiskmarkaðnum.“

Hrefna Rósa hefur tekið þátt í Food and Fun frá upphafi og segir þetta vera eins og nokkurs konar kokkaárshátíð.

„Allir helstu veitingastaðir á Íslandi taka þátt í Food and Fun og umgjörðin er öll mjög skemmtileg. Svo kynnist maður mörgum erlendum kokkum og fær ferska sýn á það helsta sem er að gerast í matargerðarlistinni.”








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.