Matur

Tvær gerðir af gómsætu smurbrauði

Smurbrauð með reyktum laxi og kavíar



Smyrjið rjómaosti að eigin vali á rúgbrauðssneiðar, sem hafa verið skornar út í hringi með móti. Formið reyktan lax eins og rós og leggið ofan á. Á toppinn fer vænn skammtur af kavíar. Punkturinn yfir i-ið er örlítið af avókadó-mauki (sjá uppskrift fyrir neðan) skreytt með dilli eða öðru fersku kryddi.

Avókadómauk

2 avókadó

tómatur

laukur

kóríander

örlítið af sýrðum rjóma

tabaskósósa, eftir smekk

1 msk. sítrónusafi

salt, eftir smekk

Maukið avókadó í skál. Skerið lauk smátt og bætið út í ásamt tómatnum, handfylli af kóríander, sítrónusafa, Tabaskósósu og sýrðum rjóma. Hærið vel saman. Geymið maukið í um klukkatíma áður en þess er neytt.

Smurbrauð með rækjum



Smyrjið rúgbrauðssneiðar með smjöri.

Leggið salatblað ofan og því næst rækjur.

Sprautið majónesi ofan á rækjur.

Leggið tómat- og sítrónubát fallega ofan á.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.