Skoðun

Stuðningsgrein: Jóna og séra Jón

Eydís Hörn Hermannsdóttir skrifar
Tugþúsundir Íslendinga hafa þegar tekið afstöðu með einhverjum frambjóðenda til forseta. Þúsundir vinna að framboði og reyna að fá fleiri til fylgis. Þeir eru alls konar. Sumir eru skráðir í pólitískan flokk, sumir þola ekki pólitík. Margir punga út aur í kosningasjóði enda kosta ferðir og auglýsingar sitt. Flestir frambjóðendur borga brúsann að hluta til sjálfir og fá afganginn úr kosningasjóði. Sumir hafa sett þak á eyðsluna.

En þetta er ójafn leikur. Einn frambjóðandi hefur sérstöðu. Hann heyr sína baráttu á ríflegum launum frá okkur öllum á meðan keppinautar hans verða að gera hlé á brauðstritinu og leita eftir stuðningi frá almenningi eða steypa sér í skuldir.

Hann ferðast á milli kjördæma á launum frá ríkinu, heldur ræður og hittir fólk. Hann er forsetinn og vill endilega halda áfram að vera forseti. Hann var á launum frá mér og þér þegar hann talaði yfir fiskvinnslufólki í Grindavík og reyndi að ýta undir ríg á milli landsbyggðar og borgar um leið og hann talaði niður alþingismennina okkar.

Hann var á launum frá mér og þér þegar hann gaf í skyn að einn sterkasti mótframbjóðandinn væri skrautdúkka og laug vísvitandi upp á eiginmann hennar. Hann var á launum frá mér og þér þegar hann gaf í skyn að hann væri sá eini sem gæti stöðvað ríkisstjórnina í að framselja sjálfstæði þjóðarinnar.

Þetta er maðurinn sem var á launum frá okkur þegar hann reyndi að sannfæra erlenda ráðamenn um ágæti íslenskra fjárglæframanna löngu eftir að í óefni var komið. Reyndar hefur hann verið ótrúlega lengi á launum hjá þjóðinni. Hann var áður þingmaður (formaður um skeið) og fjármálaráðherra fyrir Alþýðubandalagið en það var löngu eftir að hann hrökklaðist úr Framsóknarflokknum úrkula vonar um að komast þar til valda. Hann hefur því starfað meira og minna í pólitíska geiranum.

Í ljósi þessa er ótrúlegt að það séu einmitt stuðningsmenn Ólafs sem hafa talað mest um að kosningabarátta Þóru Arnórsdóttur sé af pólitískum toga og borguð af hagsmunaaðilum. Á heimasíðu framboðs Þóru er gefið upp að 93% framlaga koma frá einstaklingum, flest á bilinu 3 til 5 þúsund krónur.  Fimm framlög eru á milli 200 – 400 þúsund krónur. Mér er til efs að hægt sé að kaupa neitunarvald forseta fyrir 400 þúsund.

Það er hins vegar rétt hjá þeim að framboð Þóru sé kostað af hagsmunaaðilum. Það er fólk eins og ég og þú af því að hagsmunum okkar er einmitt betur borgið með nýjan forseta. Forseta sem hefur aðra forgangsröðun, er ekki búinn að brenna brýrnar að baki sér og hefur ekki skipað sér í flokk með einum eða neinum.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×