Skoðun

I save

Arnþór Gunnarsson skrifar
Sagan sýnir að pólitískur og efnahagslegur óstöðugleiki eða stjórnarbyltingar ala gjarnan af sér nýja öfluga pólitíska leiðtoga sem taka að sér að leiða þjóðir út úr aðsteðjandi vanda. Að vísu er upp og ofan hvort sú leiðsögn hefur reynst farsæl, því oftar en ekki hefur bjargvætturinn reynst vera loddari og lýðskrumari. Saga tuttugustu aldar geymir marga slíka.

Allt frá bankahruninu og búsáhaldabyltingunni hafa margir Íslendingar vænst þess að fram á sjónarsviðið kæmi einstaklingur með sterkan persónuleika, hyggjuvit og slíka pólitíska færni að hann gæti leitt þjóðina í gegnum þrengingarnar og áfram inn í uppbyggingarstarfið. Mörgum til mikillar furðu bólaði ekkert á slíkum einstaklingi en þeir hinir sömu hafa nú loksins áttað sig á því að hann er mættur og það fyrir löngu. Hann var nefnilega á sviðinu allan tímann. Hann var á pólitíska sviðinu, fyrst sem alþingismaður, síðan ráðherra og loks forseti. Og hann var í útrásarveislunum, ýmist sem boðsgestur eða þá að hann hélt þær sjálfur. Og hann var í fjölmiðlunum, bæði hérlendis og erlendis. Hann var mikilvirkur gerandi og hann er það ennþá.

Hlutverkin eru orðin mörg eins og hjá gamalreyndum leikara. En öfugt við leikarann hefur hann aldrei haft leikstjóra því hann hefur stjórnað sér sjálfur. Ekki nóg með það, hann hefur líka samið rulluna sína sjálfur. Framan af var hann að vísu oftar en ekki í aukahlutverki, enda létu þá ýmsir leikstjórar og handritshöfundar mjög að sér kveða, auk þess sem hann var frekar óvinsæll meðal áhorfenda. En mörg undanfarin ár hefur hann farið með eitt af aðalhlutverkunum og nú orðið er hann einfaldlega einn í aðalhlutverki. Aðrir eru í aukahlutverkum. Og vinsældir hans meðal áhorfenda hafa aukist til muna. Reyndar er orðið vafasamt að tala um áhorfendur því þeir eru orðnir virkir þátttakendur í leiknum, hvort sem þeim líkar betur eða verr. Leikur þeirra er að sönnu veigalítill, þeir eru ýmist í klappliðinu eða pú-liðinu.

Fáir muna lengur hvenær og hvernig sjónleikur þessi byrjaði og enginn veit fyrir víst hvaða stefnu hann tekur næst eða hvenær honum lýkur. Jafnvel ekki handritshöfundurinn sjálfur, enda semur hann handritið jafnharðan. Það er galdurinn.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×