Skoðun

Saumaklúbbur sameinast um Þóru

Við kynntumst þegar við vorum litlar stelpur og höldum enn hópinn. Við áttum í raun fátt annað sameiginlegt en að búa í sama hverfinu. Komum úr stórum og litlum fjölskyldum, misvel efnuðum og fengum mjög ólíkt uppeldi. Sumar voru á fullu í tónlist, aðrar í íþróttum, dansi, bókmenntum, dúkkulísum eða servíettusöfnun. Samt urðum við vinkonur – og erum enn, miðaldra með börn og bú og afar mismunandi lífsstíl og skoðanir.



Við erum níu vinkonurnar. Lögfræðingur, grunnskólakennari, aðstoðarleikskólastjóri, ráðherra, rússneskufræðingur, borgarfulltrúi, hagfræðingur, matselja og tölvunarfræðingur. Við eigum misstórar fjölskyldur og búum á mun stærra svæði en þegar við vorum litlar. Höfum flutt víðsvegar um landið og búið erlendis um lengri og skemmri tíma.



Við erum ósammála um margt. Sérstaklega pólitík. Sumar eru borgaralegar, aðrar róttækar og enn öðrum leiðast svona skilgreiningar. Hrunið hafði mismikil áhrif á okkur og við erum ekki sammála hverjum það er um að kenna. Við vorum ósammála um Icesave, við erum ósammála um störf ríkisstjórnarinnar, Evrópusambandið, stjórnarskránna og höfum í gegnum tíðina verið ósammála um mjög margt annað.



En við erum sammála um eitt. Við erum allar sem ein sannfærðar um að Þóra Arnórsdóttir sé okkar besti kostur sem næsti forseti Íslands. Konan sem bauð sig til forsætis þunguð af framtíðinni. Við treystum henni til að verða forseti okkar allra, til að standa fyrir uppbyggilegu samtali, bæði innanlands sem og við erlendar þjóðir, til að taka erfiðar ákvarðanir og til að stuðla að sátt og samlyndi sem svo sárlega hefur skort í samfélagi okkar að undanförnu.



Eyjan okkar, Ísland, er ástæðan fyrir því að við erum þjóð. Við búum saman á þessu afmarkaða svæði. Annars erum við afar fjölbreytilegur hópur, komum úr ólíkum fjölskyldum, vinnum fjölbreytt störf og erum ósammála um margt. En við myndum öll eina heild sem á sameiginlega afar mikilvæga hagsmuni.



Þess vegna sameinumst við um Þóru. Við sameinumst um Þóru því við þurfum heiðarlegan forseta sem lyftir okkur úr hjólförum skotgrafahernaðar. Yfirvegaðan forseta sem lyftir orðræðunni á hærra plan. Hugrakkan og greindan forseta til að takast á við nýja tíma. Við þurfum einlægan forseta sem virðir fjölbreytileika þjóðarinnar, sem leiðir saman ólík sjónarmið og sameinar fólk um að gera sitt besta til að stuðla að betri framtíð heildarinnar. Bjartri framtíð þjóðarinnar. Við þurfum forseta sem þykir vænt um sína þjóð. Sameinumst!



Áslaug Hersteinsdóttir-Hölttä

Benedikta Birgisdóttir

Birna Íris Jónsdóttir

Erna Guðrún Kaaber

Halldóra Guðmundsdóttir

Íris Arna Jóhannsdóttir

Katrín Júlíusdóttir

Kristbjörg Edda Jóhannsdóttir

Sóley Tómasdóttir




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×