Skoðun

Nýting skógarfugla

Gylfi Magnússon skrifar
Umræðan um að nýta eignir erlendra aðila til hagsbóta fyrir Íslendinga með húsnæðislán er nokkuð sérstæð. Gefin hafa verið ýmis loðin fyrirheit en mörgum spurningum er ósvarað. Um þetta er eftirfarandi að segja.

Í fyrsta lagi er ekki á vísan að róa. Óvíst er að hægt verði að ná samningum um uppgjör þrotabúa gömlu bankanna, snjóhengjuna og afnám gjaldeyrishafta sem skila ríkissjóði (eða Seðlabanka) umtalsverðum fjármunum, í krónum. Það er þó alls ekki útilokað. Fordæmin eru m.a. Avens samningurinn svokallaði frá árinu 2010. Hér væri þó um mun flóknari samninga að ræða og hærri upphæðir. Sóknarfæri ríkissjóðs í slíkum samningum byggja á þeirri sorglegu staðreynd að útlendingum er almennt enn meira í nöp við krónuna en Íslendingum. Því geta allir haft hag af samningum.

Það þarf samninga. Fyrirheit um eignaupptöku, afturvirka skattlagningu og því um líkt eru merkingarlaus af þeirri einföldu ástæðu að auðvelt væri að verjast slíku með aðstoð dómsstóla. Það myndi engu skila nema margra ára töf. Skiptir þá engu þótt e.t.v. sé hægt að magna upp andúð á andlitslausum útlendingum meðal almennings, m.a. líkja þeim við hræfugla.

Í öðru lagi er ekki sjálfgefið hvernig á að verja slíku fé, þegar og ef það skilar sér. Þar skipta sömu sjónarmið máli og þegar fjallað er um aðrar tekjur ríkissjóðs. Hægt er að verja þeim til að bæta heilbrigðiskerfið, menntakerfið, vegakerfið o.s.frv., lækka skatta eða lækka skuldir hins opinbera. Svo er auðvitað hægt að lækka skuldir tiltekinna þjóðfélagshópa eins og ýmsir leggja nú til.

Eignalítið fólk varð verst úti

Of snemmt er að ákveða slíkt nú, ekkert frekar en það er tímabært að ráðstafa hugsanlegum olíuauð Íslendinga. Þó verður að benda á að flöt lækkun húsnæðisskulda er mjög ómarkviss og ósanngjörn nýting opinberra fjármuna. Hún rennur eðli máls skv. að stærstum hluta til hátekjufólks á höfuðborgarsvæðinu. Þar eru skuldirnar mestar. Þar er hins vegar ekki vandinn mestur. Standi pólitískur vilji til þess að nota almannafé til að taka enn frekar á vanda skuldsettra heimila sem urðu illa úti í sviptingum undanfarinna ára væri mun markvissara og eðlilegra að gera það með aðgerðum sem styddu þrengri hóp, sérstaklega eignalítið lág- og meðaltekjufólk sem keypti sitt fyrsta húsnæði á árunum 2004 til 2008. Sá hópur varð verst úti vegna húsnæðisbólunnar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×