Skoðun

Gleðilegt sumar!

Hanna Birna Kristjánsdóttir skrifar
Sumarið er loksins komið. Þrátt fyrir að íslenska veðrið sé ekki alltaf í takt við tímasetningar dagatalsins, vitum við að nú verða dagarnir ekki aðeins lengri og bjartari, heldur verður krafturinn, vonin og bjartsýnin meiri.

Þessi sumarbyrjun er líka sérlega ánægjuleg þar sem við fáum á sama tíma tækifæri til að gera breytingar til góðs á Íslandi, fjölga hér tækifærum og hefja uppbyggingu.

Á morgun göngum við til kosninga sem snúast fyrst og fremst um það hvert við viljum stefna og hvernig við viljum haga málum næstu árin. Á morgun kjósum við um framtíðina. Við kjósum um ný tækifæri, ný vinnubrögð og nýja von.

Ég hef átt þess kost að undanförnu að hitta margt fólk víða um land. Þau samtöl hafa sannfært mig um að viðfangsefni komandi kjörtímabils snúist einkum um þrennt. Í fyrsta lagi að lækka skatta með áherslu á að það gagnist sem best launþegum og auki ráðstöfunartekjur fjölskyldna. Í öðru lagi þarf að bregðast með raunhæfum og sanngjörnum hætti við skuldavanda heimilanna. Og í þriðja lagi þarf að sækja fram í atvinnulífinu og fjölga störfum með afnámi gjaldeyrishafta, einkaframtaki, og nýsköpun þannig að við getum tryggt traustan grunn fyrir þá velferðarþjónustu sem við viljum vernda.

Þetta eru brýnustu viðfangsefnin. Þetta eru viðfangsefni sem snerta alla og það er skylda okkar sem störfum í stjórnmálum að hlusta, bretta upp ermar og vinna fyrir fólkið í landinu og með fólkinu í landinu. Þessi verkefni verða leyst sameiginlega af stjórnmálamönnum sem trúa á fólkið og af fólki sem trúir á framtíðina. Ísland er og á að vera land tækifæranna. Verkefni okkar er að sjá til þess að Ísland verði þannig land og það gerum við best með því að trúa á okkur sjálf, hvert annað og þá framtíð sem bíður okkar.

Við eigum skilið að skipa okkur í hóp með þeim allra bestu og Íslendingar eiga skilið aukinn kaupmátt sem gefur fjölskyldum von um betri tíma. Sem þjóð þurfum við að sameinast um að gefa okkur slíkt tækifæri. Við stígum fyrsta skrefið á morgun.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×