Hrifla og heimurinn Ólafur Þ. Stephensen skrifar 23. maí 2013 06:00 Margt í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar bendir til að hún geti staðið undir því markmiði sínu að hefja „nýja sókn í þágu lands og þjóðar“. Nýja stjórnin boðar lækkun skatta á fólk og fyrirtæki og einfaldara skattkerfi sem letur fólk ekki til að bjarga sér. Hún ætlar að vinda ofan af misráðnum breytingum á fiskveiðistjórnarkerfinu og endurskoða rammaáætlun um virkjanir og náttúruvernd þannig að mat sérfræðinga en ekki pólitík ráði virkjanakostum. Hún boðar víðtækt samráð og sátt við aðila vinnumarkaðarins, pólitískan stöðugleika í fjárfestingarumhverfinu, afnám gjaldeyrishaftanna og að íslenzkt efnahagslíf njóti trausts á ný, bæði innanlands og erlendis. Allt ætti þetta að geta stuðlað að því að koma hjólum atvinnulífsins í hraðari snúning á ný. Ef ríkisstjórnin ætlar að ná árangri þarf hún að opna íslenzkt efnahagslíf upp á gátt og tryggja samkeppnishæfni þess á alþjóðlegum vettvangi. Um slíka stefnu eru höfð falleg orð í kaflanum um utanríkismál. Ýmislegt í stefnuyfirlýsingunni er hins vegar alls ekki í þeim anda, heldur frekar þeirra „þjóðmenningarlegu“ hughrifa frá Hriflu-Jónasi sem óneitanlega svifu yfir vötnum á fundarstað verðandi landsfeðra á Laugarvatni í gær. Þeir stefna til dæmis ekki að því að Ísland eignist stöðugan, alþjóðlegan gjaldmiðil. Gera á hlé á viðræðum um raunhæfasta möguleikann á slíku, aðild að Evrópusambandinu, og ekkert kemur í staðinn. Án markmiðs um nýjan gjaldmiðil verður erfiðara að komast út úr höftunum. Þó má segja að það sé jákvætt að í stefnuyfirlýsingunni sé dyrunum í Evrópumálunum ekki skellt alveg í lás, heldur skilin eftir ofurlítil rifa. Ríkisstjórnin ætlar heldur ekki að gera neitt til að efla samkeppni í landbúnaðinum og lækka þannig matarverð. Í upptalningu um skatta og gjöld sem á að lækka er ekkert talað um ofurtollana á búvörur. Það á að halda áfram að moka peningum almennings í óhagkvæmt landbúnaðarkerfi og framsóknarmaður í landbúnaðarráðuneytinu mun passa gamla kerfið eins og margir aðrir á undan honum. Svo er mikið vafamál að markmið stjórnarinnar um að ná peningum út úr erlendum kröfuhöfum þjóni markmiðinu um aukið traust íslenzks efnahagslífs á alþjóðavettvangi. Kröfuhafarnir eru nefnilega fjárfestar líka, þótt hræfuglsstimplinum hafi verið klínt á þá, og vilja ekki láta fara illa með sig frekar en aðrir fjárfestar. Hætt er við að margir sem létu loforð um skuldaleiðréttingu ráða atkvæði sínu í kosningunum verði fyrir vonbrigðum með stjórnarsáttmálann. Skuldaleiðréttingin er ekki í hendi, óútfærð og ótímasett. Ef peningarnir frá kröfuhöfum skila sér ekki á að stofna sérlegan leiðréttingarsjóð, en ekki hefur verið útskýrt hvaðan peningarnir í honum eiga að koma. Miklar vonir eru bundnar við nýja ríkisstjórn, ekki sízt hjá fólki sem er athafnasinnað og vill nýta tækifærin í íslenzku efnahagslífi. Af þeim sökum er talað fullmikið um starfshópa og nefndir í stefnuyfirlýsingunni; það ætti að vera meiri áherzla á skjótar aðgerðir. Og nýir húsbændur í stjórnarráðinu ættu fremur að beina augum út í heim en heim að Hriflu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ólafur Stephensen Mest lesið „Þetta er ekki hægt, en það verður samt að gera þetta“ Arnar Þór Jónsson Skoðun Kristrún, Þorgerður og Inga: Framtíð Íslands - Ykkar tími er komin! Gísli Hvanndal Jakobsson Skoðun Hvað er borgaraleg pólitík? Guðjón Heiðar Pálsson Skoðun Mýtan um sæstreng! Andrés Pétursson Skoðun Jólaskreytingafyllerí: Eru takmörk fyrir því hversu langt má ganga í jólaskreytingum? Hildur Ýr Viðarsdóttir Skoðun Milljónerí Hannes Örn Blandon Skoðun Kosningum lokið og hvað nú? Ólafur Ágúst Hraundal Skoðun Það er ekki nóg að vera klár stelpa/strákur/stálp Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun Bíp Bíp Bíp Ágúst Mogensen Skoðun Kvennaárið 2025 Drífa Snædal Skoðun
Kristrún, Þorgerður og Inga: Framtíð Íslands - Ykkar tími er komin! Gísli Hvanndal Jakobsson Skoðun
Jólaskreytingafyllerí: Eru takmörk fyrir því hversu langt má ganga í jólaskreytingum? Hildur Ýr Viðarsdóttir Skoðun
Kristrún, Þorgerður og Inga: Framtíð Íslands - Ykkar tími er komin! Gísli Hvanndal Jakobsson Skoðun
Jólaskreytingafyllerí: Eru takmörk fyrir því hversu langt má ganga í jólaskreytingum? Hildur Ýr Viðarsdóttir Skoðun