Skoðun

Sókn er besta vörnin

Eva Magnúsdóttir og Rúnar Bragi Guðlaugsson skrifar
Mosfellsbær hefur verið í mikilli sókn á þeim 12 árum sem við sjálfstæðismenn höfum verið við stjórnvölinn. Fjárhagsstaðan hefur orðið sterkari, skuldahlutfall lækkað, og allar lykiltölur í rekstri hafa batnað mikið. Þetta er ekki síst að þakka þeim mikla og góða mannauði sem Mosfellsbær býr yfir og styrkri stjórn núverandi meirihluta.

Sókn er ávallt besta vörnin og við erum stolt af þeirri miklu uppbyggingu sem átt hefur sér stað í Mosfellsbæ á síðustu árum. Bæjarfélagið er fyrir vikið betur í stakk búið til að takast á við framtíðina enda voru kreppuárin notuð til sóknar. Á þessum trausta grunni viljum við áfram byggja bæinn okkar upp.

 

Atvinnutækifærum fjölgar

Í Mosfellsbæ hefur atvinnutækifærum fjölgað á undanförnum árum. Byggð hafa verið ný þjónustufyrirtæki í bænum, eins og framhaldsskóli og  hjúkrunarheimili og verið er að byggja slökkvistöð.  Eitt stærsta verktakafyrirtæki landsins, Ístak, hefur flutt starfssemi sína í bæinn og gert hefur verið átak í sölu atvinnulóða m.a. með því að lækka gjöld. Störfum hefur fjölgað mikið á kjörtímabilinu og leggjum við áherslu á að gera enn betur í þeim efnum. Jarðvegurinn hefur verið undirbúinn og við erum vel í stakk búin til að hefja nýja og öfluga sókn í atvinnumálum okkar fallega bæjar. 

Rúnar Bragi Guðlaugsson er varabæjarfulltrúi og formaður Þróunar og ferðamálanefndar í Mosfellsbæ.
Fjölgun starfa

Það er nauðsynlegt að auka tekjur bæjarins enn frekar þar sem bærinn okkar fer stækkandi. Það þarf því að fjárfesta í ýmsu eins og hér verður komið inn á. Við þurfum að auka tekjur og ætlum því að laða að atvinnufyrirtæki og hvetja til aukinnar atvinnusköpunar og fjárfestinga.

Við ætlum að móta atvinnustefnu fyrir Mosfellsbæ með þátttöku íbúa og atvinnulífsins í anda lýðræðisstefnu Mosfellsbæjar. Í kjölfarið munum við einbeita okkur að því að efla enn frekar atvinnuuppbyggingu í bænum, m.a. með því að stofna átakshóp í samstarfi við hagsmunaaðila. Niðurstaðan verður fjölgun starfa og verður liður í því að fjölga störfum í bæjarfélaginu að við tryggjum nægt framboð atvinnulóða á samkeppnishæfu verði.

Heilsueflandi samfélag

Í kjölfar þess að Mosfellsbær er orðið fyrsta heilsueflandi samfélag á Íslandi hafa sóknartækifæri til þess að laða að heilsufyrirtæki aukist til muna. Áfram verður unnið að verkefninu Heilsueflandi samfélag í anda lýðheilsustefnu. Um er að ræða þróunarverkefni sem Mosfellsbær hefur tekið forystu í að vinna með heilsuklasanum Heilsuvin og Embætti landlæknis. Verkefninu hefur verið skipt í fjóra þætti, næringu, hreyfingu, líðan og lífsgæði. Stefnt er að því að Mosfellsbær verði í framtíðinni höfuðstaður heilsufyrirtækja.

 

Við þurfum að nýta sértöðu bæjarins okkar og bjóða ferðamenn velkomna í bæinn. Við ætlum að  nýta þau fjölmörgu tækifæri sem felast í ferðaþjónustunni til atvinnuuppbyggingar í Mosfellsbæ. Í bænum okkar og nágrenni höfum við framleiðslu á mat, menningu og handverki auk þess sem  hér er vagga skálda og tónlistarmanna. Þetta þurfum við að nýta okkur.

Mosfellsbær hefur lagt áherslu á að  tryggja ungum Mosfellingum sumarstörf og undanfarin ár hafa ungmenni frá 17 ára til 20 ára getað sótt um sumarstörf hjá bæjarfélaginu sínu. Markmiðið er að þau ungmenni sem hafa takmarkaðan aðgang að vinnumarkaði vegna aldurs njóti forgangs að sumarátaksstörfum. Þetta og margar fleiri framfarir ætlar Sjálfstæðisfólkið í Mosfellsbæ að tryggja. Þitt atkvæði skiptir máli.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×