Skoðun

Framtíð Reykjavíkur – framtíð okkar allra

Garðar Jónsson skrifar
Framtíðarsýn um þróun sveitarfélaga er birt í aðalskipulagi hvers sveitarfélags.  Við íbúar þessa lands mótum gjarnan okkar eigin framtíðarsýn um þróun okkar nærumhverfis.  Mín sýn er einföld - þægilegt til búsetu með góðu samspili fólks, atvinnulífs, menningar, þjónustu og náttúru.  Gott jafnvægi á húsnæðismarkaði, öflug heilbrigðisþjónusta og greiðar samgöngur eru dæmi um lykilþætti sem styðja þægilegt samfélag til búsetu og lífsgæði. Gildandi aðalskipulag Reykjavíkurborgar gerir það ekki.

Flugvöllur flyst úr Vatnsmýrinni upp á Hólmsheiði, nái stefna núverandi meirihluta borgarinnar fram að ganga.  Flugvöllurinn gegnir mikilvægu samgönguhlutverki og núverandi staðsetning hans tryggir greiðan sjúkraflutning til Landspítala fyrir þá sem þurfa um langan veg að fara til að komast undir læknishendur með sjúkraflugi.  Áformað er að öll hátækniþjónusta Landspítalans verði staðsett við hringbraut í framtíðinni.  Flutningur flugvallarins úr Vatnsmýrinni væri því á skjön við sýn mína um greiðar samgöngur og öfluga heilbrigðisþjónustu – heilbrigðisöryggi væri stefnt í hættu.  Gert er ráð fyrir að byggja 4.950 íbúðir í Vatnsmýrinni eftir að flugvöllurinn hefur verið fluttur..  Í aðalskipulaginu segir að flugvallarsvæðið sé „mjög verðmætt byggingarsvæði“.  Ég vil að við notum þetta dýrmæta svæði fyrir það sem okkur finnst dýrmætast í lífinu – lífið sjálft – og höldum flugvellinum á þessum stað.

Framtíðarsýn núverandi meirihluta borgarinnar um þróun gömlu hafnarinnar í Reykjavík liggur fyrir. Í stuttu máli er reiknað með þéttum byggingum bæði á Miðbakka og á Slippasvæðinu og þar fyrir vestan.  Byggingarnar verða allt að 5 hæðir með 480 íbúðum auk þjónusturýmis.  Starfsemi slippsins víkur fyrir háreistum kassalaga byggingum og tengsl við sögu hafnarinnar rofna að mestu leyti nái þessi stefna fram að ganga.  Mikilvægt er því að mínu mati að endurskoða þessa stefnu svo markmið náist um betra samspil fólks, atvinnulífs, menningar og náttúru.

Húsnæðismál í borginni eru í ólestri.  Leiguverð er komið í þær hæðir sem fer langt fram yfir fjárhagsgetu almennings.  Kaupverð húsnæðis hefur einnig hækkað sem segir að framboð þess hefur ekki fylgt eftirspurn.  Aðalskipulag borgarinnar gerir ráð fyrir 14.500 nýjum íbúðum til ársins 2030.  Þegar betur er að gáð er framtíðarsýnin að reisa flestar þessara íbúða í Vatnsmýrinni, við höfnina og á öðrum stöðum á og við miðbæjarsvæðið þar sem byggingarsvæðið er talið mjög verðmætt.  Þessar íbúðir verða því ekki af ódýrara taginu.  Í úthverfum borgarinnar, sem ungt fólk leitar gjarnan á til íbúðakaupa, er einungis reiknað með byggingu 1.600 íbúða til ársins 2030, auk 400 íbúða á Kjalarnesi. Á hverju ári má hinsvegar reikna með um 2.000 nýjum einstaklingum inn á íbúðamarkað.  Framtíðarsýn núverandi meirihluta þýðir því að mínu mati áframhaldandi hækkun íbúðaverðs og leiguverðs. Þetta er ekki mín framtíðarsýn í húsnæðismálum.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×