Matur

Ostakökufyllt epli - UPPSKRIFT

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Ostakökufyllt epli

 
6 epli

250 g mjúkur rjómaostur

1/4 bolli sykur

1 tsk vanilludropar

1 egg

1 tsk kanill

hafrakökumylsna, karamellusósa og pekanhnetur ef vill



Hitið ofninn í 180°C. Skerið efri hluta eplanna af og skafið innihaldið úr eplunum. Blandið rjómaosti, sykri, vanilludropum, eggi og kanil vel saman og fyllið eplin með ostakökublöndunni. Bakið í 20 til 25 mínútur og leyfið eplunum síðan að kólna alveg. Skreytið með karamellusósu, hafrakökumylsnu og pekanhnetum og berið fram.

Fengið hér.







×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.