Skoðun

Okkur vantar upplýsingar

Ari Trausti Guðmundsson skrifar
Ég verð vonandi seint sakaður um að vera lítill áhugamaður um umhverfis- og náttúruvernd. Þegar kemur að deilunum um veitumannvirki sunnan við Þjórsárver og að lagaumhverfinu, ákvarðanaferlinu og fleiru skyldu, fallast mér þó hendur. Ég átta mig á litlum hluta málefnisins. Mig grunar að þannig fari fyrir flestum.

Sérfræðingar um orkumál hafa sín álit á miðlun vatns í virkjanir sem fyrir eru og hagkvæmni framkvæmda á umræddu svæði, jarðvísindamenn hafa sín á afrennsli frá Hofsjökli og verunum í Þjórsá og fleiru skyldu, og lífvísindamenn segja sitt um áhrifin á lífríkið. Svo koma þeir til sem íhuga landslagsheildir og hrein sjónræn áhrif mannvirkja, loks stjórnmálamennirnir og þannig mætti áfram telja.

Óháð nýjustu breytingum á friðlandsmörkum og hugsanlegri endurskoðun Rammaáætlunar, tel ég eitt og annað vanta í opinberu umræðuna, þ.e. fyrst og fremst upplýsingar handa öllum þeim er ekki standa djúpum fótum í henni.

Staðreyndir á borðið

Hvað er veitulónið stórt ef af verður (sennilega mismunandi útfærslur)? Hvar væri það niður komið? Hefur það lítil, miðlungs eða mikil áhrif á tiltekna landslagsheild? Nákvæmlega hvers konar land færi undir vatn; vel gróið, lítt gróið, með öllu gróðurvana?

Hvernig mannvirki þarf og hvar (sennilega mismunandi útfærslur sem auðvelt er að sýna)? Hver eru sjónrænu áhrifin (sæmilega sýnd með tölvulíkönum)? Hver eru fyrirsjáanleg áhrif á fossana í Þjórsá (sem innheldur bæði jökulvatn og lindar- og yfirborðsvatn)? Þá á ég ekki við ágiskanir heldur útreiknuð áhrif á sennilegu magnbili og eftir árstíðum. Minnkar rennslið í Dynk um 5%, 15% eða 50%? Er verið að eyðileggja alla fossana, eins og fréttamaður einn komst að orði? Í hverju felst hagkvæmnin?

Öllum er til gagns, hver sem afstaða þeirra er nú, að fá staðreyndir á borðið. Þannig verður mikilvæg umræða um friðlýsingar, orkumál, ferðamennsku eða hvaðeina að öðru en þeim loftkenndu skylmingum sem hún er í allt of mörgum tilvikum. Því miður finnst mér því þannig varið nú um stundir og hef raunar áður minnst á skort á upplýsingum og staðreyndum í átökum og umræðum um náttúruvernd og náttúrunytjar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×