Skoðun

Viðbrögð við hlýnun heimilis okkar allra

Ari Trausti Guðmundsson skrifar
Við erum, eins og mörg dæmi sanna, hrifin af tækifærum sem færa okkur skyndilega hagsbætur, eða að minnsta kosti fljótlega. Helst miklar á skömmum tíma. Auðvitað er þetta ekkert sérkenni Íslendinga einna en hefur lengi loðað við. Vandkvæðum sem fylgja er minna sinnt; gjarnan með því að horfa framhjá þeim, velja úr eða afneita þeim. Það er ávallt krefjandi að horfast í augu við raunveruleikann, þurfa jafnvel að gangast við að eiga þátt í vandkvæðunum og verða að vinna með mótsagnakenndar staðreyndir. Allt þetta blasir við á næstu fáeinum áratugum þegar loftslagsvandinn tekur að bíta illilega í allt okkar líf með ærnum tilkostnaði, einhverjum tækifærum og ansi mörgum ógnunum.

Forsætisráðherra missti af dýrmætu tækifæri til þess að leggja plúsa og mínusa með heildstæðum hætti á borðið, nú þegar nýjasta loftslagsskýrslan var kunngerð. Ofuráhersla á tækifærin, einstöðu Íslands og allt of fá orð um raunveruleg og víðtæk vandamál einkenndu orð hans. Þau hafa vakið athygli, heima og heiman.

Auðlinda- og atvinnuvegaráðherrann stóð sig mun betur (pistill í Fbl. 4. ap.) og gerir grein fyrir nokkrum tækifærum og fáeinum ógnunum. Þar nefnir hann t.d. súrnun sjávar. Hún, hlýnun hafsins og breytingar á fiskistofnum fela í sér gríðarmikil vandkvæði sem okkur rétt grunar hvert geta stefnt heimsbyggðinni.

Báðir ráðherrarnir slepptu því að tengja hvort sem er tækifæri, eins og matvælaframleiðslu, eða vandkvæði, eins og súrnun sjávar, við þá augljósu staðreynd að verði ekki dregið kröftuglega úr hækkun koltvísýrings í lofti (nú af óþekktri stærð í hundruð þúsundir ára – rúmlega 400 milljónustuhlutar) eigum við afar alvarlegt ástand í vændum. Og hvernig er það gert? Með alþjóðlegum samningum og höftum á orkuframleiðslu með jarðefnaeldsneyti, minni vinnslu þessa eldsneytis, aukinni áherslu á nýja orkugjafa og minni áherslu á vinnslu málma og jarðefna sem menga við stóriðju.

Aðlögun samfélaga

Í þessu sambandi skiptir útflutningur raforku frá Íslandi litlu en kolefnisjöfnun með uppgræðslu og förgun koltvísýrings (eins og Sigurður Ingi nefnir), skorður við frekari álvinnslu hér heima og andstaða við gas- eða olíuvinnslu í norðrinu þeim mun meiru. Þýði það minni hagvöxt, breyttan lífsstíl og aðhald okkar og annarra, verður svo að vera.

Nú er komið að því að hlýnun andrúmsloftsins kallar á aðlögun samfélaga og alls konar mótvægisaðgerðir sem svör við afleiðingum hennar. Ríkisvaldið, sveitarfélög, helstu sérfræðistofnanir, Almannavarnir og hagsmunasamtök eiga að mynda þverfaglegan og -pólitískan samráðshóp með aðstöðu og starfsfólki: ÍSLAND 2030. Hlutverk hans væri að safna upplýsingum um leiðir til aðlögunar og mótvægis, kortleggja áhrif hlýnunar á Íslandi og við landið á samræmdan hátt og fræða almenning, þingið og framkvæmdavald um stöðuna með ársskýrslu.

Manngerði hluti skógar- og jarðvegseyðingar á Íslandi botnaði öldum saman í nánast óhjákvæmilegum leiðum til að lifa af í landinu og þekkingarskorti á afleiðingunum. Tækifærin voru mörg en vandkvæðin látin reka á reiðanum þar til of langt var gengið. Við gerum ekki viðlíka mistök á 21. öld.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×