Grikkir höfnuðu samningnum sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 4. júní 2015 08:28 Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands. vísir/epa
Grikkir höfnuðu samningi um afborganir landsins sem settur var fram af alþjóðlegum lánadrottnum þeirra í gær. Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, sagði skilyrði framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins til að leysa skuldavanda landsins ósanngjörn. Tsipras fundaði í Brussel í gær með Jean-Claude Juncker, forseta framkvæmdastjórnar ESB, og forseta evruhópsins, Jeroen Dijsselboem. Hann kynnti á fundinum tillögur sínar til umbóta sem hann sagði raunhæfar og vonaðist að með því væri loks komin lausn á skuldavanda landsins. Í yfirlýsingu frá Evrópusambandinu segir að viðræðum verði haldið áfram og að það þokist mjög í átt að samkomulagi. Lítill tími er þó til stefnu, en Grikkir þurfa að greiða 300 milljónir evra til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á morgun. Stórir gjalddagar reka síðan hver annan næstu vikurnar, en stærsta endurgreiðslan á að vera í næsta mánuði. Þann 20.júlí á Grikkland að greiða 3,5 milljarða evra til Seðlabankans. Náist ekki sátt fyrir morgundaginn þarf ESB og AGS að leysa út neyðarlán til Grikkja.
Grikkland Mest lesið Stígarnir fá falleinkunn hjá hjólafólki Innlent Umboðsmaður Alþingis óskar svara frá Útlendingastofnun Innlent Fagna þotunni sem markar tímamót í sögu Icelandair Innlent Vaktin: Myndun nýrrar ríkisstjórnar Innlent Niðurbrotin eftir synjun og segir afkomuótta blasa við næstu mánuði Innlent Linda Dröfn á lista BBC um 100 áhrifamestu konur heims Innlent Afturkalla átta friðlýsingar Innlent Fjárhagsáætlun samþykkt eftir ellefu tíma umræður Innlent Lítill arfur á barnsaldri dró dilk á eftir sér Innlent Rifrildi, innbrot og eftirför Innlent Fleiri fréttir Leggja drög að ákæru á hendur forsetanum Krefjast niðurfellingar í þöggunarmálinu Herlögin loks felld úr gildi Sækja að annarri stórri borg í Sýrlandi Óvissa þrátt fyrir að þingið hafi fellt neyðarlögin úr gildi Lýsir yfir herlögum í Suður-Kóreu Engin greinarmunur gerður á Líbanon og Hezbollah ef friðurinn heldur ekki Rannsaka ekki ljósleiðaraskemmdir sem sakamál ennþá Stefnir í vantraust og aðra stjórnarkreppu Skorið á ljósleiðara í Finnlandi Hafnar því að þurfa að velja á milli Bandaríkjanna og Evrópu Fordæmalaus náðun Bidens Mörg hundruð vígamenn frá Írak til aðstoðar Assad-liðum Vilja vara aðra við örlögum dóttur sinnar í Laos Játar að hafa ekki afl til að taka aftur hernumdu svæðin Ríkisstjórnin og Barnier í hættu vegna fjárlaga Biden náðar son sinn Kynlífsverkafólk í Belgíu á nú rétt á fæðingarorlofi og lífeyri Ungur maður særði tvennt í skotárás á Grænlandi Hafa náð tökum á hálfri Aleppo og fjölda þorpa Assad-liðar gefa hratt eftir í Aleppo Síðasta heimsókn forseta fyrir opnun Notre Dame Tjadar og Senegalar segja Frökkum að koma sér Reyna að flytja óstöðugt andefni með vörubílum Njósnarar Rússa ræddu morð eða rán á blaðamanni Yfirvöld í Laos banna sölu Tiger vodka og viskís Vilja aðkomu Kínverja að rannsókn á skemmdum sæstrengjum Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Grænlendingar fagna nýjum alþjóðaflugvelli Segja að endurtaka verði kosningarnar umdeildu í Georgíu Sjá meira