Skoðun

Myndum við stofna RÚV?

Ari Trausti Guðmunsson skrifar
Myndum við stofna ríkisútvarp nú á dögum? - er spurt. Sennilega reikna spyrjendur með því að nútíminn væri andstæður þess konar ríkisstarfsemi. Þeir telja almennri fjölmiðlun, margþættum samfélagsumræðum og kynningum á öllum kimum menningar væri vel borgið í höndum einkafyrirtækja, alls konar áhugafólks um fjölmiðlun á pappír, í útvarp, sjónvarpi og á netinu. Það lítur ekki illa út en reyndin yrði önnur.

Ástæðan er sú að hending, eða pólitískur ásetningur, myndi ráða hvort hlutlægni væri gætt, tilviljun réði hvort fjölbreytni væri næg, hvort útbreiðsla miðlunar teldist næg og endingartími hvers miðils væri nægur. Auk þess þarf töluvert fjármagn til þess að skila af sér efni sem stenst lágmarkskröfur um framsetningu og gæði. Fjölmiðlun á að vera jafn góð eða betri að gæðum en annað sem menn taka sér fyrir hendur handa öðru fólki að moða úr. Og til margra þátta hennar þarf auk þess fagmenn.

Þess vegna, kæru fyrirspyrjendur, er svarið já! Rétt eins og við myndum stofna opinber leikhús til að flytja tugi leikverka á ári, öflug listasöfn sem sinna jafnt jaðarmyndlist sem klassík, ólíka opinbera skóla til að hafa menntun sem fjölbreyttasta og almenningsbókasöfn til að dreifa ritum um allt milli himins og jarðar. Sem sagt: Samfélagsátak til að tryggja sem best að skoðanafrelsi dafni, umræður miði að lausnum og lágmarkslýðræði fyrirfinnist. Því er nefnilega þannig farið að einkafyrirtæki og áhugafólk sinnir mikilli fjölmiðlun nú þegar. Þar með er RÚV löngu orðið viðbót til hliðar við flóruna; viðbót sem á að lúta skýrum starfsreglum um hlutlægni, landsútbreiðslu, öryggisþjónustu, menningarrækt á öllum sviðum, fjölbreytni og góð, tvíhliða tengsl við samfélagið.

Gagnrýna má stofnunina fyrir eitt og annað og stjórnvöld fyrir of mikla hörku í garð fyrirtækisins. Aldrei átti að breyta RÚV úr stofnun í næstum gjaldþrota fyrirtæki, þegar í upphafi gjörningsins, vegna hárra lífeyrisskuldbindinga. Öll sú gagnrýni breytir litlu um nauðsyn samfélagsmiðils, hvort sem allir nota hann, margir eða hlutfallslega fáir. Hvað RÚV varðar vill mikill meirihluti landsmanna hafa það starfandi þó svo menn greini á um eitt og annað í rekstri og dagskrá.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×