Skoðun

Uppgangur ferðaþjónustu kemur öllum til góða

Helga Árnadóttir og Andrés Magnússon skrifar
Samspil atvinnugreinanna í okkar litla íslenska hagkerfi er öllum ljóst. Þannig hefur það alltaf verið og mun trúlega alltaf verða. Uppgangur einnar atvinnugreinar hefur jákvæð áhrif fyrir allt hagkerfið og öfugt.

Sá gífurlegi vöxtur, sem ferðaþjónustan sem atvinnugrein hefur notið á undanförnum árum, sýnir okkur kannski betur en nokkru sinni fyrr hversu mjög hagsmunir atvinnugreina eru samtvinnaðir. Allt frá 2010 hefur mikilvægi ferðaþjónustu vaxið hröðum skrefum og eru fá ef nokkur dæmi um sambærilegan vöxt á jafn skömmum tíma. Á þessum tíma hefur fjöldi ferðamanna sem leggja leið sína til Íslands fjórfaldast. Á sama tíma hafa tekjur þjóðarbúsins vaxið gífurlega í formi gjaldeyristekna, VSK-tekna og annarra beinna og óbeinna skatttekna. Þá hefur atvinnusköpun aukist til muna um allt land og afleiddar tekjur vaxið samhliða. Ferðamenn eru nú í auknum mæli að kaupa hvers kyns innlenda þjónustu, versla og njóta þeirrar afþreyingar sem í boði er.

Andrés ?Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ
Þessi stórkostlegi vöxtur hefur sannarlega haft jákvæð áhrif á starfsemi verslunarinnar í landinu og raunar einnig á starfsemi fjölmargra þjónustufyrirtækja. Á fyrri hluta þessa árs vörðu erlendir ferðamenn 11,6 milljörðum króna í verslun á Íslandi, sé horft til kortaveltu. Það er rúmlega 3 milljörðum meira en á sama tíma í fyrra. Menn þurfa raunar ekki að líta lengi í kring um sig til að sjá þessar breytingar með berum augum, mannlíf og yfirbragð allrar verslunar í miðborg Reykjavíkur og um allt land sýnir þetta svo ekki verður um villst. Fjöldi verslana og vöruúrval hefur aukist til muna hvert sem litið er og fjölbreytt þjónusta er nú í boði sem áður þekktist ekki. Í þessu samhengi má nefna að talið er að ferðamenn muni neyta um 22 tonna af innlendri matvöru á dag á þessu ári, setja um 54 tonn af eldsneyti á bílaleigubíla sína og kaupa íslenska hönnun sem aldrei fyrr.

Þá eru heildartekjur af hverjum ferðamanni innanlands að aukast á milli ára. Á fyrri hluta síðasta árs nam t.a.m. tekjuaukningin um 31% milli ára á meðan fjölgun ferðamanna á sama tímabili nam 27%. Vísbendingar gefa til kynna áframhaldandi aukningu í þessa átt á yfirstandandi ári. Það er okkar allra að nýta áfram þau tækifæri sem felast í fjölgun ferðamanna. Það hefur jákvæð og mikilvæg áhrif á hagkerfið allt, eykur velsæld og blómgar mannlíf. Vaxtarverkir eru óhjákvæmilegir en með yfirvegun, festu og samtakamætti okkar eru okkur allir vegir færir.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×