Skoðun

Öflugur háskóli til farsældar

Jón Atli Benediktsson skrifar
Það er óumdeilt meðal þeirra þjóða sem fremstar standa að háskólar eru ómissandi hlekkur í þekkingar- og verðmætasköpun nútímasamfélaga og að lífskjör í framtíðinni munu byggja á menntun, vísindastarfsemi, nýsköpun og frumkvöðlahugsun. Markmið Háskóla Íslands er því að sækja fram á sviði rannsókna og kennslu ásamt því að efla gæði og styrkja innviði. Drifkrafturinn felst í að skapa nýja þekkingu og verðmæti byggð á rannsóknum og vísindum.

Háskóli Íslands hefur verið í mikilli sókn á undanförnum árum. Rannsóknavirkni starfsmanna hefur vaxið hratt og sýna alþjóðlegar mælingar að áhrif vísindastarfsins eru á flestum sviðum vel yfir heimsmeðaltali. Þá má benda á að um 1,5% þjóðarinnar á aldrinum 25-64 ára ljúka nú prófgráðu frá skólanum á ári hverju. Á sama tíma er Háskólinn í nánu samstarfi við marga af helstu rannsóknaháskólum heims ásamt því að eiga í ríkulegri samvinnu við öflugar íslenskar vísindastofnanir og mörg fyrirtæki.

Faglegur styrkur Háskóla Íslands varð til þess að hann komst árið 2011 á lista Times Higher Education World University Rankings yfir 300 bestu háskóla heims. Árið 2015 var Háskóli Íslands í 222. sæti og jafnframt í 13. sæti yfir bestu háskóla á Norðurlöndum. Þessi árangur byggist á frábæru starfsfólki og skýrri langtímasýn og hann skapar fjölmörg tækifæri til samstarfs, innanlands og utan. Til að festa þennan árangur í sessi og ná viðspyrnu fyrir áframhaldandi sókn höfum við fyrir skömmu mótað nýja framtíðar­stefnu fyrir tímabilið 2016-2021 undir titlinum Öflugur háskóli – farsælt samfélag.

Gífurleg vonbrigði

Háskóli Íslands nýtur mikils trausts hjá íslenskum almenningi og við sem þar störfum höfum bundið miklar vonir við að stjórnvöld taki höndum saman með okkur í þeirri sókn sem framundan er. Allir hagvísar benda til þess að bjart sé fram undan og það eru því gífurleg vonbrigði að í nýsamþykktri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir næstu ár eru háskólarnir í landinu skildir eftir við nauðsynlega uppbyggingu innviða íslensks samfélags.

Meðalframlag á hvern háskólanema í ríkjum OECD er um þriðjungi hærra en á Íslandi og framlög á Norðurlöndum að meðaltali tvöföld á við það sem gerist hér. Þetta hefur allt saman legið fyrir í langan tíma. Háskóli Íslands er afar vel rekin stofnun og hefur með ráðdeild tekist að halda rekstrinum í jafnvægi um árabil. Þrátt fyrir mikið aðhald er í ár í fyrsta sinn gert ráð fyrir 300 m.kr. rekstrarhalla. Við það verður ekki unað lengur. Ef ekki á að stefna uppbyggingarstarfi Háskóla Íslands í voða er komið að því að stjórnvöld láti verkin tala.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×