Skoðun

Um launastefnu ríkis og afturvirkt kjararáð

Þórunn Sveinbjarnardóttir skrifar
Sautján aðildarfélög BHM undirbúa kjaraviðræður við ríkið en gerðardómur um kjör félagsmanna fellur úr gildi 31. ágúst nk. Varla þarf að rifja upp að sumarið 2015 stöðvaði Alþingi lögmætar verkfallsaðgerðir BHM með lagasetningu sem einnig fól sérstökum gerðardómi að ákvarða kaup og kjör félagsmanna aðildar­félaganna. Það reyndist ríkisvaldinu ekki heilladrjúg ráðstöfun því að í beinu framhaldi af úrskurði gerðardóms ákváðu aðrir aðilar á vinnumarkaði – ASÍ, BSRB og SA – að starta enn einu höfrungahlaupinu á grundvelli gerðardóms. BHM átti enga aðild að þeirri ákvörðun. Ríkisvaldið bætti svo um betur og gaf kjararáði lausan tauminn við ákvörðun launa æðstu embættismanna ríkisins. Þar hefur tilteknum stéttum og stjórnendum verið úthlutað miklum afturvirkum launahækkunum.

Ástæða er til að rifja þessa atburðarás upp í aðdraganda kjarasamninga aðildarfélaga BHM við ríkið. Félagsmenn horfa að sjálfsögðu til ákvarðana kjararáðs við mótun kröfugerðar. Þá hefur Læknafélag Íslands nýlega gert kjarasamning við ríkið þar sem þó nokkrar launahækkanir eru faldar í breyttri launatöflu. Þetta eru gleðifréttir fyrir félagsmenn aðildarfélaga BHM sem starfa hjá ríkinu. BHM hefur ítrekað kallað eftir launastefnu ríkisins en aldrei fengið skýr svör frá samninganefnd ríkisins. En vísbendingarnar eru skýrar í ákvörðunum kjararáðs og í glænýjum samningi við lækna.

Að lokum verður ekki hjá því komist að nefna menntunarákvæði gerðardóms en ein af meginkröfum aðildarfélaga BHM er að menntun sé metin til launa. Menntunarákvæðið átti að koma til framkvæmda 1. júní 2016. Rúmu ári síðar hefur þorri félagsmanna aðildarfélaga BHM ekki fengið greiðslur samkvæmt ákvæðinu. Þetta er nöturleg staðreynd ekki síst í ljósi þess að aðrir aðilar á vinnumarkaði hafa hækkað laun um sömu prósentu án tillits til menntunar. En, eins og áður segir, úrskurðir kjararáðs og nýr kjarasamningur Læknafélagsins gefa góðar vonir um málefnalegar launahækkanir til handa háskólamenntuðum ríkisstarfsmönnum í næstu samningalotu.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×