Skoðun

Lífeyrir aldraðra hækki strax í 320 þúsund kr. á mánuði eftir skatt

Björgvin Guðmundsson skrifar
Alþingiskosningar fara fram 28. október nk. Sem eldri borgari geri ég kröfu til þess, að frambjóðendur skýri frá stefnu sinni í málefnum aldraðra og öryrkja. Mál þeirra hafa verið í ólestri undanfarið, einkum kjaramálin. En lífeyri aldraðra og öryrkja hefur verið haldið svo mjög niðri, að engin leið hefur verið að lifa af þeim lífeyri, sem stjórnvöld hafa skammtað þeim. Þeir hafa ekki haft nóg fyrir öllum útgjöldum og oft hafa lyf eða læknishjálp orðið útundan; það er mannréttindabrot. Ég er að tala um þá sem hafa eingöngu tekjur frá almannatryggingum.

Ég tel vegna þeirrar uppsveiflu sem nú er í efnahagslífi þjóðarinnar að tímabært sé að gera myndarlega lagfæringu á kjörum aldraðra og öryrkja þannig að lífeyrisþegar þurfi ekki áfram að bera kvíðboga fyrir morgundeginum. Tillaga mín er þessi: Lífeyrir aldraðra hækki strax eftir kosningar í 320 þúsund krónur á mánuði eftir skatt (425 þúsund kr. á mán. fyrir skatt). Það er ekki unnt að lifa mannsæmandi lífi af lægri upphæð. Þessi upphæð er í samræmi við neyslukönnun Hagstofunnar en samkvæmt könnun á meðaltalsútgjöldum einhleypinga í landinu er þetta sú upphæð sem einstaklingar nota að meðaltali til neyslu. Skattar eru ekki inni í þeirri tölu hjá Hagstofunni og því er þessi upphæð í samræmi við lífeyri TR eftir skatt.

Síst of mikið fyrir eldri borgara

Einhverjum finnst ef til vill að það sé of mikið fyrir aldraða að hafa 320 þúsund kr. á mánuði í lífeyri frá TR eftir skatt, miðað við að þeir hafi engar aðrar tekjur. Það finnst mér ekki. Meðallaun í landinu eru 667 þúsund kr. á mánuði samkvæmt nýrri launarannsókn Hagstofunnar. Það er fyrir skatt. Alþingismenn hafa 1,2 milljónir kr. á mánuði og ráðherrar hafa 1,8 milljón á mánuði. Forsætisráðherra hefur rúmar 2 milljónir á mánuði. Þessar greiðslur eru fyrir utan aukasporslur og hlunnindi. Forstjórar og framkvæmdastjórar fyrirtækja hafa 1,6 millj. kr. á mánuði. Miðað við þessi háu laun er það ekki mikið þó eldri borgarar, sem lokið hafa vinnudegi sínum, hafi 320 þúsund á mánuði. Þetta eru þeir, sem skapað hafa þetta þjóðfélag.

Vantar fleiri hjúkrunarheimili

Enda þótt kjaramálin séu mikilvægust eru önnur mál einnig mikilvæg. Til dæmis vantar fleiri hjúkrunarheimili. Biðlistar eru langir eftir rými þar; erfitt fyrir eldri borgara að komast þar inn. Byggja verður fleiri hjúkrunarheimili. Einnig þarf að búa betur að heimahjúkrun svo eldri borgarar geti verið sem lengst heima. Heimahjúkrun er undirmönnuð og býr við fjárskort. Úr því þarf að bæta.

 

Höfundur er viðskiptafræðingur.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×