Skoðun

Jafnrétti er leiðarljós í starfi Háskóla Íslands

Jón Atli Benediktsson skrifar
Á árunum 2010 til 2015 dró jafnt og þétt úr kynbundnum mun á launum starfsfólks Háskóla Íslands og er munurinn nú minni en gengur og gerist í íslensku atvinnulífi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýútkominni skýrslu Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, „Kynjajafnrétti innan Háskóla Íslands“, um niðurstöður jafnlaunarannsóknar og úttektar á framgangskerfi Háskóla Íslands. Þessi árangur er afar ánægjulegur og er afrakstur margvíslegra aðgerða og umræðu sem átt hefur sér stað innan skólans á undanförnum árum í þeim tilgangi að útrýma kynbundnum launamun.

Starfsfólk Háskóla Íslands skiptist í tvo hópa, akademíska starfsmenn og starfsfólk í stjórnsýslu. Í skýrslunni kemur fram að þegar tekið hefur verið tillit til hefðbundinna skýribreyta er meiri munur á launum karla og kvenna innan stjórnsýslunnar (4%) en í akademískum störfum (0,9%). Við því þarf að bregðast.

Samkvæmt skýrslunni eru vísbendingar um að launamunurinn meðal akademískra starfsmanna sé ekki beint kynjaður heldur megi rekja hann til framgangskerfis skólans. Framgangskerfið byggir m.a. á vinnumati sem skýrsluhöfundar telja betur sniðið að greinum þar sem karlar eru í meirihluta. Þetta geri körlum hægara um vik að fá framgang í starfi en konum og skilar þeim um leið hærri launum. Þessar vísbendingar skýrslunnar tökum við mjög alvarlega og munum nota þær við endurskoðun vinnumatskerfis skólans sem nú stendur yfir.

Skýrsla Félagsvísindastofnunar mun jafnframt nýtast við yfirstandandi vinnu við þróun fjölskyldustefnu Háskóla Íslands sem mun hafa það að markmiði að gera starfsfólki betur kleift að samþætta starf og einkalíf. Einnig er hafinn undirbúningur að kynjaðri fjárhagsáætlanagerð og jafnlaunavottun fyrir Háskóla Íslands.

Brugðist við af festu

Umræða um niðurstöður skýrslu Félagsvísindastofnunar kemur beint í kjölfar #metoo-byltingarinnar en reynslusögur af kynferðislegri áreitni og öðru kynbundnu ofbeldi hafa valdið vakningu í íslensku samfélagi. Við þessum mikilvægu röddum höfum við hjá Háskóla Íslands brugðist af festu. Í byrjun desember var settur á fót starfshópur til að kanna hvort núverandi siðareglur skólans og verklagsreglur um viðbrögð við kynbundinni og kynferðislegri áreitni og öðru kynferðislegu ofbeldi dugi til að taka á þessum málum. Starfshópnum er ætlað að meta hvort og hvaða frekari aðgerða er þörf. Jafnframt hefur stærri hóp starfsfólks og nemenda verið boðið til samtals um hvaða frekari greiningarvinnu sé þörf og frekari skref þurfi að taka. Innan Háskóla Íslands munum við ekki sýna þolinmæði gagnvart valdníðslu og niðurlægjandi hegðun í garð kvenna og jaðarsettra hópa.

Jafnrétti er leiðarljós í starfi Háskóla Íslands og eitt af grunngildum í stefnu skólans fyrir tímabilið 2016-2021. Frekari greiningar er þörf á starfsemi Háskólans með tilliti til jafnréttissjónarmiða, en skýrsla Félagsvísindastofnunar er mikilvæg við gerð aðgerðaáætlunar um útrýmingu kynbundins launamunar innan skólans. Árangur Háskóla Íslands byggist á þeim auði sem býr í starfsfólki og nemendum. Mikilvægt er að hlúa að honum með því að tryggja starfsumhverfi sem stuðlar að öryggi, velferð, heilbrigði og jafnrétti.

Höfundur er rektor Háskóla Íslands




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×