Skoðun

Vítahringur heimilisleysis

Valgerður Árnadóttir skrifar
Heimilisleysi í Reykjavík hefur tvöfaldast á fimm árum. Hér er ekki átt við þá sem búa í ótryggu húsnæði og flakkar milli vina og vandamanna. Yfir 350 manns í Reykjavík teljast heimlislaus. Talan er hærri því því hópur fólks er skráður með lögheimili þótt þau séu á vergangi.

Fólk á götunni á ekki að vera ósýnilegt og við eigum ekki að láta eins og þau séu ekki til. Það eru grundvallar-mannréttindi að hafa skjól yfir höfuðið. Óttækt er að hér búi fólk á vergangi og í ótryggu húsnæði. Við verðum að bæta hér úr.Það þarf að opna heimili fyrir tvígreindar konur sem glíma við geðsjúkdóma og fíknivanda, bjóða upp á öruggt neyslurými fyrir fíkla og varanleg úrræði fyrir heimilislausa.

Reynsla erlendis hefur sýnt að árangursríkasta leiðin til að leysa geð- og fíknivanda utangarðsfólks er að veita öruggt skjól og tækifæri til vinnu eða menntunar. Margir í þessum hópi velkjast inn og út af heilbrigðisstofnunum og fangelsum en þegar þau eru á bataleið og eru send út í heiminn þá er ekkert sem tekur við þeim. Það er ekki auðvelt að taka þátt í samfélaginu þegar allur tími og orka fer í að tryggja sér næturstað. Þetta er vítahringur sem ekki leysist af sjálfu sér. Ef ekkert er að gert þá mun vandinn halda áfram að vinda upp á sig. Sjálf kaus ég Besta flokkinn á sínum tíma því það var eitt af fáum kosningarloforðum þeirra að leysa vanda heimilislausra en það eru liðin 8 ár og vandinn hefur bara versnað.

Píratar í Reykjavík komu á tveggja ára tilraunaverkefni “Housing first” árið 2016 með Velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndafræði „Housing First“ er húsnæði fyrir utangarðsfólk án kvaða. Aðferðafræðin er í samræmi við stefnu okkar í velferðar- og forvarnamálum, en þar segir að þeir sem eigi hvergi höfði að halla skuli njóta þeirra mannréttinda að fá þak yfir höfuð án kvaða. Fyrst sýnum við fólki virðingu og samkennd því þannig sköpum við traust til næstu skrefa.

Fólk gleymir því þegar það hrópar „Utangarðsmenn, hvað með  fjölskyldufólk sem vantar húsnæði?” að eitt málefni útilokar ekki annað, húsnæðisvandi fjölskyldufólks er ekki leystur með þvi að hunsa utangarðsfólk. Það felst bæði samfélagslegur og efnahagslegur ávinningur af því að leysa vanda utangarðsfólks, það er dýrt að reka heilbrigðisstofnanir og fangelsi og öryggi fyrir utangarðsfólk þýðir einnig aukið öryggi fyrir fjölskyldur og samfélagið allt.

Það er í forgangi hjá Pírötum að leysa húsnæðisvandann og byggja húsnæði á viðráðanlegu verði. Við viljum úthluta lóðum til óhagnaðardrifinna leigufélaga og stórbæta byggingareglugerðir svo unnt verði að byggja húsnæði á viðráðanlegu verði fyrir venjulegt fólk. Í velferðarsamfélagi á enginn að þurfa að búa við skort. Tími sérhagsmuna og græðgisgamma verður að enda.

Höfundur skipar 5. sæti Pírata í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×