Skoðun

Íslenskan á tímum örra breytinga

Lilja Alfreðsdóttir skrifar
Íslenska tungan er eitt af því sem gerir okkur að þjóð. Við höfum náð að varðveita hana og hlúa að henni í gegnum aldirnar. Hins vegar er alveg ljóst að íslenskan hefur átt undir högg að sækja í kjölfar örra tækni- og samfélagsbreytinga.

Tæknibyltingin er að gjörbreyta okkar daglega lífi. Um leið og það felast tækifæri í þessari þróun, þá er hún einnig áskorun. Til að mynda hefur snjalltækjabyltingin aukið aðgang að erlendu afþreyingarefni. Vegna allrar þeirra tækni sem er í boði, þá hefur þróunin verið sú að fólk leitar upplýsinga og talar við tækin sín á ensku. Til þess að íslenskan verði gjaldgeng hafa stjórnvöld ákveðið að hrinda í framkvæmd máltækniáætlun fyrir íslensku 2018-2022. Markmið hennar er að tryggja að hægt sé að nota íslensku í samskiptum við tæki og í allri upplýsingavinnslu. Þannig gerum við tungumálið okkar gildandi í stafrænum heimi til framtíðar.

Íslenskt samfélag hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum, sem felast meðal annars í því að börnum með annað móðurmál en íslensku hefur fjölgað verulega í skólakerfinu. Samkvæmt Hagstofunni eru nú yfir 12% leikskólabarna og tæp 10% grunnskólabarna sem hafa erlent móðurmál. Hlutfall ungs fólks sem brautskráist úr framhaldsskóla með annað móðurmál en íslensku er mun lægra en þeirra sem hafa íslensku sem móðurmál. Þrátt fyrir að þróunin hafi verið að batna, þá virðist vera að menntakerfið okkar verði að gera mun betur svo að öll börn geti notið sinna hæfileika. Ljóst er að bæta þarf aðstöðu þessara nemenda og endurskoða þá stefnu sem mótuð hefur verið til þessa. Leiðarljósið í nýrri stefnu verður að auka íslenskukennslu til að auka líkurnar á því að börn með annað móðurmál en íslensku hafi sömu tækifæri og aðrir í menntakerfinu.

Það eru forréttindi fyrir litla þjóð að tala eigið tungumál. Við verðum sjálf að vera meðvituð um mikilvægi þess að leggja rækt við málið okkar og nota það. Tungan leikur lykilhlutverki í menningarlegu fullveldi þjóðarinnar.

Höfundur er menntamálaráðherra




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×